Atvinnulíf

„Þegar atvinnuleysið lá fyrir fór ég í ofur-gírinn og var ofur-duglegur með börnin og að heimsækja mömmu“

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Jón Jósafat Björnsson framkvæmdastjóri Dale Carnegie.
Jón Jósafat Björnsson framkvæmdastjóri Dale Carnegie. Vísir/Vilhelm

„Að missa vinnuna er lífsreynsla sem vekur upp margar tilfinningar,“ segir Jón Jósafat Björnsson framkvæmdastjóri Dale Carnegie sem sjálfur hefur upplifað tímabil atvinnuleysis en þá hafði hann verið í góðri stjórnunarstöðu í tíu ár. Að sögn Jóns fóru sérhönnuð námskeið að vera í boði fyrir fólk í atvinnuleit fljótlega eftir bankahrun en þessi námskeið eru á vegum ýmissa aðila, m.a. annars Dale Carnegie. Nú er sú staða komin upp aftur að fólk er æ meir að sækjast eftir námskeiðum sem þessum og hvetur Jón fólk sem er á skrá hjá Vinnumálastofnun að nýta sér þann 70 þúsund króna menntastyrk sem allir þar hafa rétt á að fá.

Hér á eftir má sjá nokkur góð ráð sem Jón gefur fólki í atvinnuleit. En fyrst ræddum við málin aðeins út frá þeirri persónulegu reynslu sem Jón hefur sjálfur að því að vera atvinnulaus.

Það er margt sem blasir við þegar maður lendir í þessari stöðu. Ég var búinn að vera stjórnandi í tíu ár hjá sömu fyrirtækjasamsteypu og Outlook mómentið er minnisstætt. Flestir stjórnendur kannast við að Outlookið stjórnar lífið okkar. Áður en ég gat svarað hvort ég kæmist eitthvað þurfti ég að líta í Outlookið,“ 

segir Jón til skýringar á því hversu vanur hann var því að vera alltaf upptekinn og hafa mikið að gera.

En það breyttist.

„Svo allt í einu er Outlookið tómt og þú skrollar daga, vikur og mánuði fram í tímann og við blasir óskrifað blað. Þetta er eitthvað svo áþreifanlegt að finna fyrir því að þú ert farinn af rússibananum sem viðskiptalífið er,“ segir Jón og bætir við: „Svo er það þessi félagslegi þáttur. Jafnvel þó að þú fáir fín starfslok og við tekur frí sem er alla jafnan gott þá eru allir vinir þínir í vinnu, það er enginn til að leika við.“

Að sögn Jóns fer hins vegar fljótlega að reyna á hinn innri mann þar sem spurningar eins og Veistu hvað þig langar að gera eða hvert þú vilt fara? vakna.

Þegar atvinnuleysið lá fyrir fór ég í ofur-gírinn og var ofur-duglegur með börnin og að heimsækja mömmu og auðvitað mála allt sem hægt er að mála. Svo klárast það og vikur og mánuðir líða. Þá fer að reyna á viðhorfið og innri mann.“

Jón segir þessa reynslu hafa nýst sér vel síðar þegar hann var orðinn framkvæmdastjóri og eigandi Dale Carnegie því reynsluna hefur hann nýtt til hönnunar á þeim námskeiðum sem eru í boði hjá þeim.

Jón hvetur fólk á skrá hjá Vinnumálastofnun að nýta sér 70 þúsund króna menntastyrkinn sem allir hafa rétt á því hann er hægt að nýta til að fara á námskeið sem efla fólk og styrkja á meðan atvinnuleysið varir. Hér er mynd af námskeiði hjá Dale Carnegie.

„Atvinnuviðtöl ættu frekar að heita atvinnusamtöl“

En hvaða ráð getur þú gefið fólki í atvinnuleit, til dæmis varðandi framkomu og fas?

Það tekur örfáar sekúndur fyrir þig að dæma aðra og aðra þig. Þannig skiptir fasið og framkoman svo miklu máli. Berðu höfuðið hátt þó að á móti blási? Ertu til í að læra nýja hluti? Ertu sveigjanlegur einstaklingur og til í áskoranir. Og hefur þú æft framkomu þína?“ 

segir Jón.

En hvernig er hægt að takast á við feimni þannig að það sé auðveldara að fara í atvinnuviðtal?

„Að fara í atvinnuviðtal er eitthvað sem flest okkar gera ekki oft á ævinni og oft líður langur tími á milli. Undirbúningur er mikilvægur. Þú þarft líka að mæta ákveðinn til leiks og nýta viðtalið til að kanna hvort þú vilt vinna með og fyrir viðkomandi,“ segir Jón og bætir við: „Atvinnuviðtöl ættu frekar að heita atvinnusamtöl þar sem það er báðir að meta hvorn annan.“

Jón segir áherslu í námskeiðum á þeirra vegum vera að byggja upp sjálfstraust og samskiptahæfni. Liður í þeirri vinnu er að vinna í viðhorfinu sínu og virkja eldmóðinn sem Jón segir alla hafa en marga nota of lítið.

Þá segir Jón mikilvægt að nýta tengslanetið þegar fólk er í atvinnuleit.

„Það er oft talað um að kunningjar nýtist betur fyrir þá sem eru í atvinnuleit en vinir. Samfélagsmiðlar eru frábærir til að virka tengslanetið og láta vita af sér. Miðlar eins og LinkedIn eru kjörnir svo og aðrir miðlar þar sem þú getur látið í ljós færni þína,“ segir Jón.

Eins bendir hann á að í atvinnuleit þurfi fólk að hugsa svolítið um atvinnuleitina eins og markaðssetningu á sjálfum sér. Markaðssetningin gengur þá út á að sýna hver hæfni viðkomandi er.

„Þú ert að bjóða starfskrafta og hugvit og þú þarft að koma því á framfæri“ segir Jón að lokum.


Tengdar fréttir

Uppsagnir framundan: „Af hverju ég?“

Fólk sem lendir í uppsögnum fer í gegnum nokkur stig tilfinninga í kjölfarið. Allt frá afneitun yfir í reiði sem beinist að yfirmanninum og sorg.

Sorg í atvinnulífi

Sorgarstigin fimm í samhengi við sorg í viðskiptum og rekstri.

Tíu ráð til að takast á við óvænt atvinnuleysi

Þótt uppsagnir hafi verið fyrirsjáanlegar víða er höggið alltaf mikið fyrir fólk sem missir vinnuna. Ekki síst nú þegar fyrirséð er að lítið verður um nýráðningar í atvinnulífinu næstu mánuði. Hér eru tíu ráð sem geta hjálpað.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×