Atvinnulíf

Sorg í atvinnulífi

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Tilfinning sorgar getur tengst viðskiptum og rekstri. Til dæmis þegar horfast þarf í augu við að rekstur mun ekki ganga upp.
Tilfinning sorgar getur tengst viðskiptum og rekstri. Til dæmis þegar horfast þarf í augu við að rekstur mun ekki ganga upp. Vísir/Vilhelm

Nokkru fyrir páska sátu starfsmenn Harward Business Review saman á fjarfundi. Skjárinn sýndi fjölda andlita samstarfsmanna eins og svo margir hér eru farnir að þekkja úr vinnuumhverfi á tímum kórónuveiru. Við erum í fjarvinnu, öðruvísi nánd. Allir í samkomubanni.

Umræðuefni fundarins snerist um hvað Harward Business Review gæti gert til að hjálpa til í aðstæðum heimsfaraldurs. Þar sem miðlun upplýsinga og sérfræðiþekkingar hefur aldrei verið jafn mikilvæg og einmitt nú.

Eftir smá stund fóru umræðurnar að snúast um tilfinningar. Ein í hópnum viðurkenndi að fyrst og fremst fyndi hún fyrir sorg. Andlitin á skjánum kinkuðu öll kolli. Já, um þetta voru allir sammála.

En getur atvinnulífið upplifað sorg?

Svarið við þessari spurningu er já og kannski er sorg í atvinnulífinu meira til staðar en okkur dettur fyrst í hug. Skoðum dæmi.

Sorg atvinnumissis

Fyrir stuttu síðan fjallaði Atvinnulífið á Vísi um uppsagnir og áhrif þeirra á líðan fólks. Þar kom fram að þegar fólki er sagt upp starfi, fer það oft í gegnum fimm stig sorgarferlis.

Þessi fimm stig eru: 

Afneitun, reiði, samningar, sorg og samþykki.

Í umfjöllun Atvinnulífsins Uppsagnir: Af hverju ég? leiðir Eyþór Eðvarðsson, ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun, lesendur í gegnum hvert stig sorgarferilsins.

Að sögn Eyþórs birtast ólík stig sorgarferilsins á afar mismunandi hátt hjá fólki en mikilvægt er fyrir fólk sem missir starf sitt eða stjórnendur sem þurfa að segja upp fólki, átti sig á því að þessi viðbrögð eru eðlileg viðbrögð við þá erfiðu reynslu sem uppsögn er.

Sorg viðskipta

Þau fimm stig sorgarferilsins sem hér eru nefnd, eru afrakstur rannsókna geðlæknisins Elísabethar Kübler-Ross. Um þau skrifaði hún í bókina On Death and Dying árið 1969. Sorgarstigin fimm hafa einnig verið sett í samhengi við sorg í viðskiptum og rekstri.

Missirinn felst þá í því að reksturinn missir tekjur og viðskiptavini sem verður þess valdandi að öll starfssemin lamast og jafnvel hættir. Skoðum þetta aðeins nánar:

»Stig 1: Afneitun. Það að trúa varla aðstæðum eða í hvað stefnir.

»Stig 2: Reiði. Þessi reiði getur beinst að utanaðkomandi aðilum, til dæmis því hvernig stjórnvöld eru að bregðast við, bankar, birgjar, samkeppnisaðilar. Reiðin getur jafnvel birst í svekkelsi yfir því að viðskiptavinirnir séu ekki meira til staðar þegar á reynir eða að starfsfólkið styðji ekki betur við reksturinn.

»Stig 3: Samningar. Þegar hér er komið, er reksturinn kominn í viðbragðsstöðu þar sem falast er eftir greiðslufrestum, endurskoðun samninga og verðs og eins og sjá má hérlendis: Samninga um skert starfshlutfall.

»Stig 4: Sorgin. Að horfast í augu við að hlutirnir eru ekki að ganga upp, þrátt fyrir að hafa reynt ýmsar leiðir og lausnir. Að hafa ekki stjórn á aðstæðum. Ná hvorki að standa við samninga eða að auka veltu né viðskipti.

»Stig 5: Samþykki. Að sætta við stöðuna eins og hún blasir við og gera áætlanir um framtíðina miðað við þessa stöðu. Á þessu stigi er fyrst farið að búa reksturinn undir breytta tíma þar sem veröldin sem var er horfin og veröldin sem verður er markmiðið. Stefnumótun og ný framtíðarsýn fylgir í kjölfarið.

Dimmt yfir öllu á tímum kórónufaraldurs.Vísir/Vilhelm

Tilgangurinn

Svo fór að í kjölfar fundarins sem vitnað var í hér í upphafi að Harward Review birti greinina „That Discomfort You‘re Feeling Is Grief.“ Þar er rætt við David nokkurn Kessler, sem var meðhöfundur og samstarfsaðili Elísabethar Kübler-Ross á sínum tíma. Kessler gefur lesendum nokkur ráð um hvernig hver og einn getur náð tökum á þeim sorgartilfinningum sem flestir eru að upplifa.

Ekki síst minnir Kessler fólk á að aðstæðurnar nú eru tímabundnar og þær munu taka enda. Kessler mælir með því að fólk segi þetta stundum upphátt því það eitt og sér getur hjálpað.

En Kessler segist líka hafa fengið leyfi hjá aðstandendum Elizabetar Kübler-Ross, sem lést árið 2004, til að bæta sjötta stigi sorgarferilsins.

Það segir hann vera: Tilgangurinn.

Að mati Kessler mun heimurinn með tímanum sjá einhvern tilgang í því ástandi sem nú ríkir. Í reynd séum við nú þegar farin að læra margt af því. Til dæmis hvernig tæknin getur hjálpað okkur að eiga í samskiptum þótt við séum aðskilin. Eða hversu gefandi göngutúr getur verið.

,,Ég er sannfærður um að við munum halda áfram að læra af þessum aðstæðum og skilja síðar hver tilgangurinn með þessu öllu saman var,“ segir Kessler.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×