Innlent

Hand­tekin fyrir líkams­á­rás og eigna­spjöll

Sylvía Hall skrifar
Konan er sögð hafa verið í annarlegu ástandi þegar hún var handtekin.
Konan er sögð hafa verið í annarlegu ástandi þegar hún var handtekin. Vísir/Vilhelm

Kona var handtekinn í Laugardalshverfi í dag vegna líkamsárásar og eignaspjalla. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var konan í annarlegu ástandi og mun hún verða yfirheyrð þegar ástand hennar er betra.

Tveir ökumenn voru stöðvaðir í dag vegna aksturs undir áhrifum fíkniefna, annar í Árbæ og hinn í Breiðholti. 

Þá var ölvaður ökumaður handtekinn í Hafnarfirði eftir að hafa ekið á kyrrstæða bifreið, en sá var vistaður í fangaklefa og bíður skýrslutöku.

Í Kópavogi voru afskipti höfð af konu vegna þjófnaðar, hótana og vopnalagabrots. Skýrsla var tekin af konunni og var henni sleppt í framhaldi af því.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×