Atvinnulíf

„Að miðaldra yfir okkur“ í golfi og eiginmaðurinn færir frúnni kaffi í rúmið

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Sigríður Margrét Oddsdóttir framkvæmdastjóri Lyfju.
Sigríður Margrét Oddsdóttir framkvæmdastjóri Lyfju. Vísir/Vilhelm

Nesvöllur er uppáhalds golfvöllur Sigríðar Margrétar Oddsdóttur framkvæmdastjóra Lyfju enda búsett á Seltjarnarnesi. Sigríður Margrét segir þau hjónin vera að „miðaldra yfir“ sig sem nýliðar í golfi en í skipulagi segist Sigríður Margrét vera dugleg að forgangsraða og taka frá tíma í skilgreind verkefni.

Sigríður Margrét er gestur kaffispjallsins þessa helgina en þar spyrjum við alltaf hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefni.

Hvenær vaknar þú á morgnana?

„Eftir góðan nætursvefn þá eru morgunstundirnar mínar bestu stundir, oftast vakna ég um klukkan hálf sjö en ég á það til að vakna jafnvel klukkustund fyrr og læðast fram úr til þess að fara að vinna.“

Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?

„Ef við vöknum við vekjaraklukkuna þá færir eiginmaðurinn mér góðan kaffibolla í rúmið, en annars bjarga ég mér sjálf um kaffi, fer yfir mikilvægustu verkefni dagsins og kíki á helstu fréttir.“

Áttu þér uppáhalds golfvöll?

„Við hjónin erum að miðaldra yfir okkur þessa dagana og byrjuðum að æfa golf í sumar, fórum fyrst á námskeið og svo fór sumarfríið alveg í æfingar og að prófa nýja golfvelli.

Það hefur komið okkur skemmtilega á óvart hvað það eru margir frábærir golfvellir á Íslandi. Nesvöllurinn er okkar heimavöllur og hann lendir þess vegna í fyrsta sæti.

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?

„Tvennt á hug minn allan þessa dagana, heilsa og hagur bæði viðskiptavina og starfsmanna Lyfju. Við ætlum að sýna það í verki að Lyfja er meira en bara apótek, Lyfja á að vera lífstílsverslun fyrir heilbrigði. Því tengt erum við að nútímavæða apótekin okkar, umbreyta vöruvalinu og einfalda þjónustuna með stafrænum lausnum.

Við bjóðum líka hjúkrunarþjónustu og sérfræðiþjónustu, erum til dæmis í samstarfi við dr. Erlu Björnsdóttur hjá Betri svefn þessa dagana en góður svefn er ein af undirstöðum heilbrigðis. Þegar kemur að hag þá hefur Lyfja hefur alltaf lagt áherslu á lágt verð samhliða miklum gæðum og nýjasta dæmið er við bjóðum andlitsgrímum af bestu gæðum fyrir almenning á besta verðinu, við buðum líka fríhafnarverð á förðunarvörum nánast í allt sumar og höldum áfram á þessari braut í haust enda rík ástæða til.“

Sigríður Margrét er ein af fáum viðmælendum í kaffispjalli sem er með góðan svefn í reglu.Vísir/Vilhelm

Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?

„Mikilvægast er að fyrirtækið sé vel skipulagt, skýrt sé til hvers er ætlast, hvert við stefnum, hver ber ábyrgð á hverju og hvernig árangur er mældur. Fyrirtæki eru fólkið sem starfar hjá þeim.

Ég er dugleg að forgangsraða, meðvituð um að góður rekstur skiptir máli en til lengri tíma horfi ég til strauma og stefna sem munu valda breytingum, það má segja að ég verji miklum hluta af tímanum mínum í framtíðinni. Ég tek frá tíma fyrirfram, daglega, vikulega, mánaðarlega og árlega í skilgreind verkefni.“

Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?

„Betri svefn á hug minn allan þessa dagana, en rannsóknir sýna að margir fullorðnir Íslendingar sofa hættulega lítið. Það er gömul og þrautseig mýta að fólk sem nái árangri þurfi lítinn svefn en byggt á þeim rannsóknum sem liggja fyrir í dag þá er því einmitt öfugt farið, svefn er afar mikilvægur fyrir líkamlega og andlega heilsu.

Af því að ég vakna snemma þá fer ég snemma að sofa, yfirleitt á milli klukkan tíu og ellefu.“


Tengdar fréttir





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×