Niðurstaða lögreglu að kveikt hafi verið í Sylvía Hall og Nadine Guðrún Yaghi skrifa 27. ágúst 2020 21:30 Tugir voru skráðir til heimilis í húsinu á Bræðraborgarstíg. Vísir/Vilhelm
Niðurstaða lögreglurannsóknar á brunanum á Bræðraborgarstíg 1 er að kveikt hafi verið í. Tíu manns sem bjuggu í húsinu og fjölskyldur þeirra sem létust ætla að fara fram á miskabætur frá þeim sem grunaða. Einnig er til skoðunar að fara í mál við eiganda hússins. Þrír létust í brunanum sem varð á Bræðraborgarstíg í lok júní. Karlmaður á sjötugsaldri var handtekinn skömmu eftir að eldurinn kom upp og hefur verið í haldi lögreglu síðan þá. Bruninn er rannsakaður sem manndráp af ásetningi. Niðurstaða tækirannsóknar á brunanum liggur nú fyrir samkvæmt upplýsingum frá Margeiri Sveinssyni, aðstoðaryfirlögregluþjóni hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Hún sé í samræmi við þann grun sem lögregla hafi haft frá upphafi - að eldurinn hafi kviknað af mannavöldum. Ekki sé hægt að veita frekari upplýsingar. Heimildir fréttastofu herma að maðurinn sé grunaður um að hafa ausið eldsneyti á gang húsins og kveikt í. Kemur til greina að fara í mál við eiganda hússins Guðbrandur Jóhannesson, er lögmaður tíu manns sem bjuggu í húsinu og fjölskyldna þeirra sem létust í brunanum. „Ég sem lögmaður gæti hagsmuna ættingja þeirra sem létust í þessum hörmulega bruna. Enn fremur get ég staðfest að ég gæti hagsmuna þeirra sem urðu fyrir líkamlegu og eignatjóni vegna brunans og á næstunni verða lagðar fram skaðabótakröfur fyrir hönd þeirra aðila þá gagnvart meintum geranda,“ segir Guðbrandur. Grunur leikur á að brunavarnir hafi ekki verið í lagi og kemur til greina að fara í mál við eiganda hússins, fasteignafélagið HD verk. „Það mál verður skoðað þegar nánari gögn liggja fyrir,“ segir Guðbrandur. Rannsókn húsnæðis- og mannvirkjastofnunar á brunanum miðar vel og er stefnt að því að skýrsla verði gefin út í haust. Stofnunin rannsakar alltaf eldsvoða þegar manntjón verður og þegar um er að ræða mikið eignartjón. Rannsóknin er óháð rannsókn lögreglu. Davíð Snorrason, forstöðumaður brunamála hjá Mannvirkjastofnun.Vísir/Egill Markmiðið er að rannsaka eldsvoðann, kröfur eldvarnaeftirlits og hvernig að slökkvistarfi hafi verið staðið. Niðurstöðum er ætlað að leiða í ljós hvort eitthvað hafi verið ábótavant hvað þessa þætti varðar. Einnig er byggingin skoðuð og hvort breyta þurfi reglum og leiðbeiningum stofnunarinnar. „Rannsókninni miðar vel og stefnt er að því að skýrslan komi út í haust. Ljóst er að bregðast þarf við þeim brunum sem verið hafa í gömlum timburhúsum að undanförnu,“ segir Davíð Snorrason, forstöðumaður brunamála hjá Mannvirkjastofnun. „Stofnunin undirbýr nú gerð leiðbeininga sem sérstaklega taka á brunavörnum í gömlum timburhúsum og hvað þarf að hafa í huga við endurgerð og breytingar í slíkum húsum.“
Bruni á Bræðraborgarstíg Reykjavík Tengdar fréttir Bruninn rannsakaður sem manndráp af ásetningi Lögreglan rannsakar brunann við Bræðraborgarstíg sem manndráp af ásetningi. Þrír létust í brunanum sem átti sér stað þann 25. júní 25. júlí 2020 07:27 Greiða ættingjum dánarbætur og aðstoðar fólkið við að sækja skaðabætur Efling mun greiða ættingjum þeirra sem fórust og þeim sem slösuðust í eldsvoða á Bræðraborgarstíg dánar- og slysabætur og aðstoðar fólk við að sækja skaðabætur. 15. júlí 2020 19:00 Bruninn á Bræðraborgarstíg: Grunur um að eldsneyti hafi verið ausið á ganginn áður en kveikt var í Grunur leikur á að eldsneyti hafi verið ausið á ganginn og kveikt í húsinu sem brann á horni Bræðraborgarstígs og Vesturgötu. 13. júlí 2020 20:02 Umboðsmaður óskar eftir gögnum vegna brunans Umboðsmaður Alþingis hefur sent Þjóðskrá Íslands fyrirspurn vegna atriða sem hann telur tilefni til að kanna í tengslum við skráningar lögheimilis og aðseturs, og eftirlits með þeim af hálfu síðarnefndu stofnunarinnar. 13. júlí 2020 16:15 Mest lesið Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Innlent „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Innlent „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Innlent Konungsskip Dana í Reykjavík Innlent Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Innlent Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Innlent Eldur logar í þaki Kringlunnar Innlent Fleiri fréttir Myndir: Allt á floti í Kringlunni Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Konungsskip Dana í Reykjavík „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Safnað fyrir gróðurskála á Kirkjubæjarklaustri „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Eldur í Kringlunni og Kristján Loftsson um hvalveiðileyfið Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Héldu fyrst að þetta væri brunaæfing Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Eldur logar í þaki Kringlunnar Björgunarsveit kölluð út í Þórsmörk Áhyggjur af vanda drengja í menntakerfinu óþarfar Þyrlan kölluð út vegna reiðslyss Kjósendur Jóns Gnarr líklegastir til að vera ósáttir með Höllu Vilja banna hvalveiðar með lögum Áttatíu prósent af plasti í fjörum landsins kemur frá útlöndum Efast um að ráðherrar nái fram markmiði sínu Tveimur haldið sofandi vegna slyssins Rútuslys í Öxnadal og meintar rangfærslur ráðherra Guðni snýr aftur í sagnfræðina Leita að nýju húsnæði fyrir kaffistofu Samhjálpar Öxnadalsheiði opin á ný Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Bein útsending: Brautskráningar Háskóla Íslands Svandís og Sigurður Ingi sögð bakka upp bílastæðagjöldin Of snemmt að kenna bikblæðingum um Átök á lokametrunum: Saka ríkisstjórn um að „slátra“ samgönguáætlun Sjá meira
Bruninn rannsakaður sem manndráp af ásetningi Lögreglan rannsakar brunann við Bræðraborgarstíg sem manndráp af ásetningi. Þrír létust í brunanum sem átti sér stað þann 25. júní 25. júlí 2020 07:27
Greiða ættingjum dánarbætur og aðstoðar fólkið við að sækja skaðabætur Efling mun greiða ættingjum þeirra sem fórust og þeim sem slösuðust í eldsvoða á Bræðraborgarstíg dánar- og slysabætur og aðstoðar fólk við að sækja skaðabætur. 15. júlí 2020 19:00
Bruninn á Bræðraborgarstíg: Grunur um að eldsneyti hafi verið ausið á ganginn áður en kveikt var í Grunur leikur á að eldsneyti hafi verið ausið á ganginn og kveikt í húsinu sem brann á horni Bræðraborgarstígs og Vesturgötu. 13. júlí 2020 20:02
Umboðsmaður óskar eftir gögnum vegna brunans Umboðsmaður Alþingis hefur sent Þjóðskrá Íslands fyrirspurn vegna atriða sem hann telur tilefni til að kanna í tengslum við skráningar lögheimilis og aðseturs, og eftirlits með þeim af hálfu síðarnefndu stofnunarinnar. 13. júlí 2020 16:15