Viðskipti innlent

Smá­forrit til að auð­velda endur­vinnslu verð­launað

Atli Ísleifsson skrifar
Tilgangur gagnaþonsins var að ýta undir sýnileika opinberra gagna og stuðla að nýsköpun með verkefnum sem ráða bót á fjölbreyttum umhverfisvandamálum.
Tilgangur gagnaþonsins var að ýta undir sýnileika opinberra gagna og stuðla að nýsköpun með verkefnum sem ráða bót á fjölbreyttum umhverfisvandamálum. Gagnaþon

Smáforrit sem ætlað er að auðvelda endurvinnslu varð hlutskarpast í flokknum „besta gagnaverkefnið“ í Gagnaþoni fyrir umhverfið sem nú er lokið.

Sigurvegarar besta gagnaverkefnisins hlutu 750 þúsund krónur í verðlaun og voru það þeir Davíð Phuong Xuan Nguyen, Róbert Ingi Huldarsson, Þórður Ágústsson og Þórður Friðriksson, eða Volgar pulsur.

„Sigurlausn þeirra Flikk flokk er snjallsímaforrit (App) sem auðveldar endurvinnslu með því að veita upplýsingar um hvernig má endurvinna vöru, þegar strikamerki hennar er skannað,“ segir í tilkynningu á vef stjórnarráðsins.

Það voru Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra afhenti verðlaunin ásamt Jóni Atla Benediktssyni, rektor Háskóla Íslands og Ara Kristni Jónssyni, rektor Háskólans í Reykjavík.

Sigurvegarar í flokkinum „besta endurbætta lausnin“ voru þær Renata Bade Barajas og Jillian Verbeurgt með lausn sinni GreenBytes og hlutu þær 450 þúsund í sigurlaun. Er lausnin hugbúnaður sem dregur úr matarsóun veitingastaða með því að nota gervigreind og veðurstofugögn.

„Í flokknum Besta hugmyndin var það teymið GreenBike sem sigraði með hugmynd sinni Hjólað fyrir umhverfið - farsímaapp sem heldur utan um sparað kolefnisspor og hvetur til hjólreiða í takt við veðurspá. Teymið samanstendur af þeim Karítas Sif Halldórsdóttur, Guðjóni Hafsteini Kristinssyni og Mörtu Björgvinsdóttur.“

Tilgangur gagnaþonsins var að ýta undir sýnileika opinberra gagna og stuðla að nýsköpun með verkefnum sem ráða bót á fjölbreyttum umhverfisvandamálum.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×