1.004 fiska vika í Veiðivötnum Karl Lúðvíksson skrifar 19. ágúst 2020 09:46 Ísarr Edwinsson með 15 punda urriða úr Veiðivötnum. Mynd: Edwin Árnason
Það styttist í að veiði ljúki í Veiðivötnum en heildarveiðin í vötnunum þetta sumarið stóð í 16.658 fiskum þegar síðustu tölur lágu fyrir. Veiðitölurnar eru uppfærðar á hverjum föstudegi og þegar rýnt er í veiðina í sumar er hún frekar dræm, í það minnsta í urriðanum þegar taldir eru saman stangardagar, fjöldi stanga og veiði pr stöng. Alls hafa veiðst 7.165 urriðar og 9.493 bleikjur í sumar en urriðaveiðin hefur verið það döpur suma dagana að veiðimenn sækja í vötnin þar sem næga bleikju er hægt að veiða og laga þar með heildartöluna mikið. Á góðu ári þegar urriðaveiðin er betri er ásóknin í bleikjuna minni. Í síðustu talningarvikunni veiddust 1.004 fiskar sem er minnsta veiðin í sumar en það er heldur ekkert óeðlilegt að veiðin dragist saman á þessum tíma. Mesta urriðaveiðin er sem fyrr í Litlasjó en þar hafa veiðst 2.685 urriðar. Mesta bleikjuveiðin er svo í Snjóölduvatni en þar hafa veiðst 5.257 bleikjur en meðalþyngdin er ekki merkileg í þessu vatni eða rétt tæp 0,6 pund sem segir að vatnið þarfnast grisjunar. Sama sagan í Nýjavatni en þar hafa veiðst 2.639 bleikjur með meðalþyngd upp á 0,4 pund og þar er grisjunar greinilega þörf. Einu vötnin sem eru komin yfir 1.000 fiska í sumar eru Hraunvötn með 1.474 fiska, Litlisjór með 2.685 fiska, Nýjavatn með 2.639 fiska og svo Snjóölduvatn með 5.257 fiska. Þessar upplýsingar og veiðitölur úr Veiðivötnum má finna á www.veidivotn.is.
Stangveiði Mest lesið Fyrstu laxarnir af Jöklusvæðinu Veiði Laxinn mættur í Sogið Veiði Þinn eigin rjúpusnafs Veiði Laxarnir farnir að bylta sér í Blöndu og Norðurá Veiði Þúsund lítra olíutankur á botni Mývatns Veiði Leita leiða til að aflétta banni Veiði Vatnamótin hafa gefið vel það sem af er vori Veiði Gæsaveiðin hefst 20. ágúst Veiði Nýjar tölur úr laxveiðiánum, veiðin greinilega á uppleið Veiði Veiðar hefjast í Þjórsá 1. júní Veiði