Bílar

Nýr Kia Ceed SW tengiltvinnbíll frumsýndur

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Nýr Kia Ceed SW tengiltvinnbíll.
Nýr Kia Ceed SW tengiltvinnbíll. Vísir/Askja

Bílaumboðið Askja mun frumsýna nýjan Kia Ceed Sportswagon í tengiltvinn útfærslu í Kia húsinu að Krókhálsi á morgun, laugardag kl 12-16 samkvæmt fréttatilkynningu frá Öskju.

Kia Ceed Sportswagon PHEV er nýjasti meðlimurinn í Ceed fjölskyldunni sem hefur fengið mörg eftirsótt hönnunarverðlaun. Hinir meðlimirnir eru XCeed, ProCeed, Ceed og Ceed SW.

Kia Ceed Sportswagon PHEV er með allt að 60 km rafdrægni og umhverfismilda 1,6 lítra bensínvél og eyðir hann aðeins frá 1,28l/100 km. Tengiltvinnvélin skilar bílnum samtals 141 hestafli og togið er 256 Nm. Bíllinn er með sex þrepa sjálfskiptingu sem er mjúk og þægileg og eykur enn frekar á góða aksturseiginleika bílsins.

Kia Ceed Sportwagon.Vísir/Askja

Nýr Kia Ceed Sportswagon PHEV er sportlegur ásýndum. Tveggja þátta grill, LED framljós með „ísmola“ LED dagljósabúnaði og þokuljósum gefa framendanum sterkan svip. Sportleg, lág hliðarlínan er með krómumgjörð um glugga og rennilega þaklínu. Innanrýmið er ríkulegt þar sem nútímaleg tækni er fullkomlega aðlöguð að 8 eða 10,25 tommu snertiskjánum sem býður upp á tengingar við aksturskerfi bílsins sem og afþreyingarkerfi.

Bíllinn er mjög rúmgóður og farangursrýmið er alls 437 lítrar. Verðið á bílnum er frá 4.290.777 kr. Kia Ceed Sportswagon PHEV er með 7 ára ábyrgð eins og allir nýir bílar frá suður-kóreska bílaframleiðandanum. Kia er með breiða línu Plug-in Hybrid bíla og það mun aukast enn frekar með komu Kia Ceed Sportswagon PHEV. Þá er hinn nýi Kia XCeed í Plug-in Hybrid útfærslu einnig væntanlegur til landsins á næstunni en forsala á bílnum hefur staðið yfir síðustu vikur hjá Öskju.


Tengdar fréttir

Árið 2020 hjá Öskju

Að sögn Jóns Trausta Ólafssonar, framkvæmdastjóra Öskju ríir bjartsýni hjá fyrirtækinu sem nýlega bætti við sig umboði fyrir Honda. Að hans mati eru öryggi, sparneytni og meiri samskipti bíla við eigendur þau svið sem munu þróast hvað mest á næstu árum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×