Viðskipti erlent

Flugfélag Færeyja hefur áætlunarflug til London

Kristján Már Unnarsson skrifar
Færeyska Airbus A319-þotan Ingálvur av Reyni að aka í flugtaksstöðu í Reykjavík sumarið 2018.
Færeyska Airbus A319-þotan Ingálvur av Reyni að aka í flugtaksstöðu í Reykjavík sumarið 2018. Stöð 2/Egill Aðalsteinsson

Færeyska flugfélagið Atlantic Airways hefur tilkynnt að það muni hefja beint áætlunarflug milli Voga í Færeyjum og London í sumar. Flogið verður til Gatwick-flugvallar einu sinni í viku, en þó aðeins yfir sumartímann til að byrja með, á tímabilinu frá 23. júní til 11. ágúst.

Atlantic Airways hefur áður sinnt áætlunarflugi til höfuðborgar Bretlands, þá til Stanstead-flugvallar, en hætti því árið 2014. Félagið ákvað þá í staðinn að fljúga til Edinborgar, sem síðan hefur verið eini áfangastaður þess á Bretlandseyjum.

Félagið rekur núna þrjár þotur af gerðinni Airbus, tvær 174 sæta Airbus A320 og eina 144 sæta Airbus A319. Síðastliðið sumar samdi það um kaup á tveimur Airbus A320neo, sem það fær afhentar á árunum 2023 og 2024.

Frá síðasta áætlunarflugi Færeyinga frá Reykjavíkurflugvelli þann 26. október 2018.Stöð 2/Friðrik Þór Halldórsson.

Þetta þjóðarflugfélag Færeyinga er eina félagið sem haldið hefur uppi millilandaflugi á þotum til Reykjavíkurflugvallar, en það eru stærstu vélar sem flogið hafa þangað reglulega. Haustið 2018 flutti félagið sig yfir til Keflavíkur og sagði ástæðurnar of litla flugstöð og of stuttar flugbrautir þegar það færði sig úr minni A319 þotum yfir í stærri A320 þotur.

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, flaug með félaginu frá Reykjavík í fyrstu opinberu heimsókn sinni til Færeyja vorið 2017.

Sjá hér: Forsetahjónin til Færeyja

Meginflugleið félagsins er milli Kaupmannahafnar og Færeyja en það flýgur jafnframt til tveggja annarra borga í Danmörku, Billund og Álaborgar. Þá flýgur félagið til Bergen í Noregi og Parísar, höfuðborgar Frakklands. Einnig býður Atlantic Airways Færeyingum upp á stök flug beint til sólarlanda, meðal annars til Kanaríeyja, Mallorca og Barcelona.

Hér má sjá frétt Stöðvar 2 frá síðasta Færeyjafluginu frá Reykjavíkurflugvelli.


Tengdar fréttir

Forsetahjónin komin í heimsókn til Færeyja

Íslendingar njóta þess að eiga bestu granna í heimi, verða skilaboð forseta Íslands til Færeyinga en Guðni Th. Jóhannesson, og frú Eliza Reed, héldu í dag í fimm daga heimsókn til Færeyja.

Færeyingar kaupa tvær nýjar Airbus-þotur

Færeyska flugfélagið Atlantic Airways hefur samið um kaup á tveimur nýjum þotum af gerðinni Airbus A320neo. Fyrir færeyskt efnahagslíf eru þessir samningar álíka stórir og kaup Icelandair á Boeing 737 MAX-vélunum árið 2012.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×