Viðskipti erlent

SpaceX stefnir á metskot

Samúel Karl Ólason skrifar
Frá geimskoti SpaceX í síðasta mánuði.
Frá geimskoti SpaceX í síðasta mánuði. Vísir/SpaceX

Starfsmenn fyrirtækisins SpaceX stefna á að setja enn eitt metið í dag. Til stendur að skjóta Falcon 9 eldflaug fyrirtækisins út í geim og verður það í sjötta sinn sem þessari tilteknu eldflaug verður skotið á loft. Engri eldflaug hefur verið skotið jafn oft á loft.

Eldflauginni var fyrst skotið á loft árið 2018, tvisvar í fyrra og tvisvar á þessu ári. Þrjú að þessum fimm geimskotum sneru að Starlink áætlun SpaceX.

Eldlfaugin mun bera 58 Starlink smágervihnetti á braut um jörðu. Markmið SpaceX er að koma gífurlegum fjölda Starlink-gervihnatta á braut um jörðu. Nota á þessa gervihnetti til að veita aðilum á jörðu niður aðgang að internetinu.

Stjarnfræðingar hafa áhyggjur af svo miklum fjölda gervihnatta og að þeir muni spilla næturhimninum. SpaceX hefur brugðist við því með að mála gervihnettina dökkum lit svo þeir endurspegli minna ljósi til jarðarinnar.

Sjá einnig: Óttast að ofgnótt gervitungla spilli næturhimninum

Markmið athafnamannsins Elons Musk sem á SpaceX með því að lenda eldflaugum og endurnýta þær er að draga verulega úr kostnaði við geimskot. Starfsmenn fyrirtækisins hafa þegar náð gífurlegum árangri í að lenda eldflaugum en Musk hefur sagt að hann stefni á að eldflaugar verði seinna meir notaðar eins og flugvélar. Þeim verði lent, þær hlaðnar og eldsneyti sett á þær og þeim flogið aftur.

Önnur fyrirtæki og stofnanir láta eldflaugar yfirleitt brenna upp í gufuhvolfinu eða hrapa í hafið.

SpaceX er einnig að endurnýta nef eldflaugarinnar, sem kallast fairing á ensku. Það nef verndar farm geimflauga gegn þeim þrýstingi og hita sem myndast við geimskot og kostar um sex milljónir dala.

Starfsmenn SpaceX hafa unið að því að útbúa þessi nef fallhlífum og nota drónaskip til að grípa þau áður en þau skella í hafinu. Fyrsta endurnýtta nefinu var skotið á loft í fyrra.

Sjá einnig: Enn eitt merkilegt geimskot SpaceX

Skotglugginn svokallaði opnast um klukkan hálf þrjú í dag. Hægt verður að fylgjast með geimskotinu í beinni útsendingu hér að neðan.


Tengdar fréttir

Starship flogið á loft og lent aftur

Starfsmönnum fyrirtækisins SpaceX tókst í gærkvöldi að fljúga frumgerð að Starship geimfarinu á loft og lenda því aftur.

Geimfararnir lentir í Mexíkóflóa

Bandarísku geimfararnir Doug Hurley og Bob Behnken lentu nú á sjöunda tímanum á jörðu eftir tveggja mánaða dvöl í Alþjóðlegu geimstöðunni.

Starship nú í forgangi hjá SpaceX

Starfsmenn fyrirtækisins SpaceX munu ekki sitja auðum höndum, þó þeir hafi náð þeim merka árangri fyrir rúmri viku síðan að vera fyrsta einkafyrirtækið til að skjóta mönnum út í geim. Nú verður þróun Starship-geimfarsins sett í forgang hjá fyrirtækinu.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×