Viðskipti innlent

Kalla inn kjúkling vegna gruns um salmonellu

Sylvía Hall skrifar
Kjúklingur. Þeir sem hafa keypt slíkan undir framleiðslulotunúmerinu sem um ræðir eru beðnir um að skila honum.
Kjúklingur. Þeir sem hafa keypt slíkan undir framleiðslulotunúmerinu sem um ræðir eru beðnir um að skila honum. Vísir/Getty

Matvælastofnun hefur varað við neyslu á kjúklingi frá Matfugli sem seldur var undir merkjum Bónus, Ali eða FK. Um er að ræða heila kjúklinga, bringur, lundir og bita sem seldir voru undir ákveðnu framleiðslulotunúmeri.

Framleiðslulotunúmerið er 215-19-01-1-06 og pökkunardagur frá 03.02.2020 til 07.02.2020. Innköllunin nær einungis til þessarar framleiðslulotu en hún var seld í verslunum Bónus, Krónunnar, Fjarðarkaupum og Nóatúni.

Þeir sem hafa keypt kjúkling með þessu framleiðslulotunúmeri eru beðnir um að skila honum í viðkomandi verslun eða til fyrirtækisins að Völuteigi 2 í Mosfellsbæ. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×