Viðskipti innlent

Sýknudómur í máli Björgólfs og Gunnars staðfestur í París

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Björgólfur Guðmundsson í viðtali árið 2006 þegar íslensku bankarnir vöktu mikla athygli erlendis.
Björgólfur Guðmundsson í viðtali árið 2006 þegar íslensku bankarnir vöktu mikla athygli erlendis. Getty Images/Graham Barclay

Áfrýjunardómstóll í París í Frakklandi hefur staðfest niðurstöðu undirréttar þar í landi og sýknað Björgólf Guðmundsson, fyrrverandi aðaleiganda Landsbankans, og Gunnar Thoroddsen, fyrrverandi yfirmann bankans í Lúxemborg, af ákæru um að hafa blekkt hundruð manna til að taka veðlán hjá Landsbankanum.

Fjallað er um málið í frönskum miðlum en Mbl.is greindi fyrst frá hér á landi.

Björgólfur var formaður bankaráðs Landsbankans á Íslandi sem var móðurfélag Landsbankans í Lúxemborg.

Gunnar Thoroddsen, fyrrverandi forstjóri Landsbankans í Lúxemborg.

Rannsóknin hófst eftir að fjöldi viðskiptavina Landsbankans í Lúxemborg leitaði réttar síns vegna lána sem tekin voru hjá bankanum, flest árið 2007. Þeir sögðu farir sínar ekki sléttar af innheimtu lánanna eftir hrun.

Samningarnir sem um ræðir voru svokallað equity release sem gæti útleggst sem „eignalán“ á íslensku. Lánað var gegn veði í fasteign og sá sem tók lánið fékk hluta af láninu greiddan út og fól síðan bankanum eignastýringu á afganginum.

Landsbankinn ráðstafaði hluta af lánunum í tiltekna skuldabréfasjóði samkvæmt fyrirmælum frá lántakanum sem í umræddum tilvikum voru allt efnamiklir franskir ríkisborgarar sem voru í viðskiptum við Landsbankann í Lúxemborg.

Í mjög mörgum tilvikum var um að ræða lífeyrisþega sem áttu skuldlausar fasteignir.

Ákæra var gefin út í september 2015. Fjallað var ítarlega um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Hundruð fasteignaeiganda, þar á meðal söngvarinn frægi Enrico Macias, sökuðu Björgólf og félaga um að hafa svikið þá með flóknum viðskiptafléttum. Alls voru níu ákærðir í málinu en allir sýknaðir í undirrétti í ágúst 2017. Sá dómur hefur nú verið staðfestur fyrir áfrýjunardómstólnum.

Gunnar segist í samtali við Mbl.is fegin að þessari sneypuför sé lokið.

Félix de Belloy, lögmaður Björgólfs, sagði eftir dómsuppkvaðninguna að réttlætinu hefði í annað skipti verið fullnægt. Málið hefði verið byggt á vafasömum grundvelli.

Olivier Baratelli, verjandi eins af hinum sjö sem ákærðir voru, gerði grín að söngvaranum Enrico Macias eftir að dómur var fallinn. Macias veðsetti húsið sitt fyrir 35 milljónir evra í viðskiptum við Landsbankann í Lúxemborg. Hann þarf að greiða þrotabúi Landsbankans 30 milljónir evra.

„Macias hefur sungið síðustu laglínuna,“ sagði Baratelli sem vill meina að söngvarinn hafi gefið hópnum sem leitaði réttar síns falskar vonir.


Tengdar fréttir

Björgólfur og félagar sýknaðir í París

Björgólfur Guðmundsson, fyrrverandi aðaleigandi Landsbankans, og Gunnar Thoroddsen, fyrrverandi yfirmaður bankans í Lúxemborg, voru í dag sýknaðir af ákæru um að hafa blekkt yfir hundrað manns til að taka veðlán hjá bankanum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×