Handbolti

Þrír komust í fjögurra áratuga klúbbinn í gær

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Fulltrúar 1980-kynslóðarinnar í Olís-deild karla.
Fulltrúar 1980-kynslóðarinnar í Olís-deild karla. vísir/vilhelm/bára

Þrír leikmenn náðu þeim merka áfanga að spila leik í efstu deild á Íslandi á fjórða mismunandi áratugnum þegar keppni í Olís-deild karla í handbolta hófst aftur í gær.

Þetta eru jafnaldrarnir Hreiðar Levý Guðmundsson, Vignir Svavarsson og Sturla Ásgeirsson (fæddir 1980). Allir fögnuðu þeir sigri í leikjum gærdagsins.

Hreiðar átti frábæra innkomu þegar Valur vann ÍBV, 25-26, í Eyjum. Fasteignasalinn knái varði sjö skot, þar af tvö víti, af þeim 15 skotum sem hann fékk á sig (47%).

Hreiðar lék sína fyrstu leiki í meistaraflokki með Gróttu/KR í 2. deild tímabilið 1997-98. Hans fyrsti leikur í efstu deild var með Gróttu/KR í 20-24 tapi fyrir þáverandi Íslandsmeisturum Vals 3. október 1998.

Á löngum ferli hefur Hreiðar komið víða við. Hann gekk til liðs við Val fyrir þetta tímabil eftir að hafa leikið með Gróttu í tvö ár þar á undan.

Vignir og félagar hans í Haukum náðu þriggja stiga forskoti á toppi deildarinnar með sigri á Fram, 23-21, á Ásvöllum. Vignir skoraði eitt mark í leiknum.

Vignir lék sinn fyrsta leik fyrir Hauka í tapi fyrir HK, 28-25, 7. mars 1999. Hann lék með Haukum til 2005 þegar hann fór til Lemgo í Þýskalandi. Vignir lék sem atvinnumaður í 14 ár en sneri aftur til Hauka síðasta sumar.

Sturla skoraði fjögur mörk úr jafn mörgum skotum þegar ÍR rúllaði yfir KA, 34-22, í Austurberginu.

Sturla lék sinn fyrsta leik fyrir ÍR í sigri á HK, 29-26, 26. nóvember 1999. Hann lék með ÍR til ársins 2004 þegar hann gekk í raðir Århus í Danmörku.

Eftir fjögur ár hjá Århus og tvö hjá Düsseldorf í Þýskalandi sneri Sturla aftur til Íslands 2010 og gekk í raðir Vals. Hann lék með Val í tvö ár en fór svo aftur í ÍR 2012 þar sem hann hefur leikið síðan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×