Innlent

Vesturlandsvegi lokað eftir alvarlegt umferðarslys

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Tengivagn virðist hafa hafnað á tveimur bifreiðum.
Tengivagn virðist hafa hafnað á tveimur bifreiðum. Vísir/jkj

Vesturlandsvegi við Kollafjörð, norðan Mosfellsbæjar, hefur verið lokað vegna alvarlegs umferðarslyss. Að sögn Vegagerðarinnar var veginum lokað að beiðni lögreglu og varir lokunin um óákveðinn tíma.

Í samtali við Vísi segir Valgarður Valgarðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, að svo virðist sem tengivagn hafi losnað af vörubifreið og lent á tveimur bílum. Mikill viðbúnaður er vegna þessa og lögreglu-, slökkviliðs- og sjúkralið vinnur nú á vettvangi. 

Fulltrúi slökkviliðs segir í samtali við Vísi að tvö hafi verið flutt á slysadeild, en hafði ekki nánari upplýsingar um líðan þeirra á þessari stundu. Unnið sé að því að hreinsa brak af vettvangi.

Hér að neðan má sjá stutt myndband sem sýnir aðstæður á slysstað.

Klippa: Umferðarslys á Vesturlandsvegi við Kollafjörð

Eftirfarandi tilkynning barst frá lögreglu klukkan 11:49:

„Vesturlandsvegur í norður er lokaður í báðar áttir við hringtorgið við Þingvallaveg vegna umferðarslyss í Kollafirði. Umferð að norðan gengur hægt meðan á vinnu viðbragðsaðila stendur á vettvangi.“

Fréttamaður okkar á vettvangi, Jóhann K. Jóhannsson, sagði í hádegisfréttum Bylgjunnar að leiðinlegt veður sé í Kollafirði þessa stundina og vindhraði allt að 20 m/s.

Eftirfarandi tilkynning barst frá lögreglu klukkan 14:05

Búið er að opna fyrir umferð um Vesturlandsveg í báðar áttir eftir umferðarslys sem varð í Kollafirði í morgun. Við viljum vara við því að það er búist við sterkum vindhviðum á Kjalarnesi frá hádegi í dag og fram undir kvöld, föstudaginn 10. janúar.

Fréttin hefur verið uppfærð.

Mikill viðbúnaður er á slysstað.kristján karl
Vesturlandsvegi hefur verið lokað bæði til norðurs og suðurs.vísir/jkj
Tilkynning Vegagerðarinnar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×