Handbolti

Landin ekki valinn í fimm­tán manna hóp Dana: Gæti bæst við í fyrra­málið

Anton Ingi Leifsson skrifar
Íslendingar gætu mögulega losnað við Landin á morgun.
Íslendingar gætu mögulega losnað við Landin á morgun. vísir/getty

Íslendingar gætu losnað við að mæta Niklas Landin á morgun en hann er ekki í fimmtán manna hóp Dana fyrir leikinn. Hópurinn var valinn í kvöld.

Landsliðsfyrirliðinn hefur verið að glíma við veikindi en Nikolaj Jacobsen bætir við sextánda leikmanninum fyrir klukkan níu í fyrramálið.







Danir ætla væntanlega að bíða og sjá hvernig Landin hefur það í fyrramálið en bróðir hans Magnus Landin verður ekki með á morgun.

Sömu sögu er að segja af Lasse Svan og Morten Olsen sem verða eki með á morgun. Rasmus Lauge er hins vegar orðinn klár í slaginn.

Flautað verður til leiks klukkan 17.15 í dag og verður fylgst með leiknum í beinni á Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×