Bílar

Rafbílasýning hjá Öskju

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Kia Niro. Vistvæn lína Kia verður til sýnis á morgun, laugardag.
Kia Niro. Vistvæn lína Kia verður til sýnis á morgun, laugardag. Vísir/Kia

Bílaumboðið Askja heldur Rafbíladag Kia í Kia húsinu að Krókhálsi 13, á morgun, laugardag klukkan 12-16. Þar verður lína vistvænna Kia bíla sýnd.

Kia mun bjóða breiða rafbílalínu á þessu ári eða alls 10 bíla og eru sex þeirra nú þegar í sölu en fjórir munu bætast í flotann á árinu.

Hér er um að ræða Kia e-Soul, Kia Optima Plug-in Hybrid í tveimur útfærslum, Kia e-Niro, Kia Niro Plug-in Hybrid og Kia Niro Hybrid. Alls eru því í boði sex mismunandi gerðir rafknúinna bíla. 

XCeed Plug-in Hybrid og Ceed Sportswago Plug-in Hybrid eru væntanlegir á næstu mánuðum og er forsala á þessum bílum þegar hafin hjá Öskju.

Sala á vistvænum bílum aldrei verið meiri og þar stendur Kia framarlega. Hlutfall vistvænna bíla þ.e. rafmagns-, tengiltvinn-, hybrid- og metanbíla hélt áfram að aukast og hefur hlutfall þeirra af heildarsölu aldrei verið hærra eða 27,5%. Fara þar tengiltvinnbílar fremstir í flokki með um 10,3% heildar sölunnar, hybrid bílar um 8,9% og rafmagnsbílar um 7,8%. Eru þetta hlutfallstölur sem eru fáheyrðar annarsstaðar í heiminum fyrir utan Noreg og er líklegt að Ísland verði áfram í fararbroddi þar sem horft er til framlengingar á ívilnunum vegna vörugjalda við kaup á slíkum bílum.

Kia Optima Plug-in Hybrid.Vísir/Kia

„Allir nýir Kia bílar eru með 7 ára ábyrgð og nær það einnig yfir rafhlöður bílanna. Ísorka verður með fræðslu um hleðslustöðvar á sýningunni í Kia húsinu á laugardag og mun Kia bjóða upp á vegleg tilboð á upprunalegum aukahlutum,“ segir í fréttatilkynningu frá Öskju vegna rafbíladags Kia.


Tengdar fréttir

Honda e forsýning

Rafbíllinn Honda e verður forsýndur í Honda sal Bílaumboðsins Öskju að Fosshálsi 1 laugardaginn 4. janúar. Þessi nýi rafbíll verður aðeins til sýnis í stuttan tíma þar sem um forsýningu er að ræða. Forsala á Honda e hefst á sama tíma þann 4. janúar. Þá verður hægt að forpanta bílinn.

Kia XCeed hlýtur Gullna stýrið

Nýr Kia XCeed var sæmdur hinu eftirsótta Gullna stýri á verðlaunahátíð í Þýskalandi sl. fimmtudag. Verðlaunin eru talin þau eftirsóttustu í bílaiðnaðinum í Þýskalandi en það eru fjölmiðlarnir Auto Bild og Bild am Sonntag sem standa að verðlaununum sem voru fyrst veitt árið 1976.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×