Fótbolti

Aftur var það Balot­elli sem skoraði fyrsta mark ára­tugarins í ítalska boltanum

Anton Ingi Leifsson skrifar
Balotelli fagnar marki sínu.
Balotelli fagnar marki sínu. vísir/epa

Lazio vann dramatískan 2-1 sigur á Brescia í fyrsta leik ársins í ítölsku úrvalsdeildinni.

Fyrsta mark leiksins skoraði glaumgosinn Mario Balotelli á 18. mínútu en þetta er annar áratugurinn í röð sem hann skorar fyrsta mark áratugarins í ítalska boltanum.







Heimamenn í Brescia voru einum manni færri frá 39. mínútu er Andrea Cistana fékk að líta sitt annað gula spjald. Gestirnir jöfnuðu fyrir hlé.

Þar var að verki Ciro Immobile en hann jafnaði metin af vítapunktnum á 42. mínútu. Immobile skoraði einnig sigurmarkið en það kom í uppbótartíma.





Lazio er eftir sigurinn í þriðja sæti deildarinnar með 39 stig, þremur stigum á eftir toppliðunum; Inter og Juventus.

Brescia er í 18. sætinu með fjórtán stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×