Farþegum Icelandair til Íslands fjölgaði um fjórðung Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 6. janúar 2020 23:00 Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair. vísir/vilhelm
Farþegum Icelandair sem félagið flutti til Íslands fjölgaði um 25 prósent á árinu 2019 sé miðað við fyrra ár, 2018, eða um 1,9 milljónir farþega. Þetta kemur fram í tilkynningu Icelandair þar sem segir að þessar tölur séu í samræmi við áherslu Icelandair á ferðamannamarkaðinn á síðasta ári: „Í desember fjölgaði farþegum Icelandair til Íslands um 11% og voru þeir rúmlega 106 þúsund talsins. Farþegum frá Íslandi fjölgaði einnig í desember, eða um 8%, og fjölgaði um 18% á árinu í heild. Tengifarþegum fækkaði um 9% í desember en fækkun þeirra var 9% á árinu í heild. Sætanýting í millilandastarfsemi félagins var 80.7% í desember samanborið við 79.6% á sama tíma 2018. Icelandair hefur aldrei flutt jafnmarga farþega í millilandaflugi og á árinu 2019 eða alls um 4,4 milljónir farþega, sem er 6% aukning á milli ára. Þá batnaði komustundvísi umtalsvert og var 80.0% í desember samanborið við 73.7% í desember 2018. Heildarstundvísi á árinu 2019 jókst um tæp 12 prósentustig á milli ára,“ segir í tilkynningu Icelandair. Þar er jafnframt haft eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra fyrirtækisins, að félagið muni halda áfram á sömu braut á þessu ári með uppstillingu leiðakerfisins og áherslum í sölu- og markaðsstarfi. „Við gerum ráð fyrir 25-30% aukningu á farþegum til landsins á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Sveigjanleiki í leiðakerfi félagsins gerir okkur kleift að bregðast hratt við breytingum í umhverfinu og mæta eftirspurn,“ segir Bogi Nils.
Ferðamennska á Íslandi Fréttir af flugi Icelandair Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira