Innlent

Lýsir eftir hvítum Chevro­let Cruze

Atli Ísleifsson skrifar
Mynd af sambærilegum bíl.
Mynd af sambærilegum bíl. Lögreglan

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur lýst eftir hvítum Chevrolet Cruze árgerð 2011 með skráningarnúmerið GUS15. Bílnum var stolið frá Suðurbæjarlaug í Hafnarfirði í gær.

Í tilkynningu frá lögreglu segir að sjáist bíllinn í umferðinni þá skuli vinsamlegast hringja tafarlaust í 112.

Sömuleiðis megi koma upplýsingum á framfæri í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×