Makamál

Brynja, fyrsta Einhleypa Makamála, er gengin út

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Brynja Jónbjarnardóttir er hagfræðingur, markaðsráðgjafi og fyrirsæta. Lítill fugl hvíslaði því að okkur að hún væri búin að finna ástina svo að við heyrðum í Brynju og fengum að forvitnast aðeins.
Brynja Jónbjarnardóttir er hagfræðingur, markaðsráðgjafi og fyrirsæta. Lítill fugl hvíslaði því að okkur að hún væri búin að finna ástina svo að við heyrðum í Brynju og fengum að forvitnast aðeins.
Brynja Jónbjarnardóttir, hagfræðingur og fyrirsæta, fann ástina í byrjun sumars. Brynja er fyrsta Einhleypa Makamála hér á Vísi og fengum við að heyra aðeins í henni og forvitnast um nýja kærastann.

Heyrðu já! Það er satt, ég er komin með kærasta. 

Við vorum saman í MH og mér fannst hann alltaf rosalega sætur. Hann er þremur árum eldri en ég og við rétt könnuðumst við hvort annað. Svo hittumst við fyrir tilviljun í bænum í byrjun sumars og byrjuðum fljótt að deita eftir það.

Sá heppni heitir Benedikt Örn Árnason og það er óhætt að segja að amor hafi bankað allhressilega upp á hjá þessu fallega pari. 

Þegar Makamál spurja hvort að hann hafi séð hana sem Einhleypuna á Vísi þá hlær hún og jánkar því en segir hún jafnfram að þau hafi verið byrjuð að hittast aðeins fyrir það. 

Brynja og Benedikt Örn er nýtt par og ástfangin upp fyrir haus.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×