Ferðalög

Perlur Íslands: Seitlandi töfraorka og stórkostleg upplifun

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Álfrún Pálsdóttir á Vestfjörðum.
Álfrún Pálsdóttir á Vestfjörðum. Mynd/Úr einkasafni

„Ef það er einhver einn staður á Íslandi sem veitir mér einstaka orku þá eru það Vestfirðirnir. Maður finnur töfraorkuna seitlast að manni um leið og keyrt er niður Steingrímsfjarðarheiðina inn í Djúpið þar sem allir ævintýralegu firðirnir taka á móti manni umkringdir háum tindum. Vestfirðirnir eru hreinlega alveg magnaður staður,“ segir Álfrún Pálsdóttir kynningarstjóri Hönnunarmiðstöðvar. Hún er nú á fullu að undirbúa hátíðina HönnunarMars, sem haldin er í júní í ár vegna aðstæðna. 

Vinkonurnar Álfrún Pálsdóttir og Aldís Pálsdóttir ljósmyndari.Mynd/Úr einkasafni

„Ég er ættuð frá Vestfjörðum í gegnum móðurfjölskylduna og við stórfjölskyldan erum vön að fara alltaf einu sinni á ári í gönguferðir um Vestfirði undir leiðsögn afa sem þekkir hverja þúfu fyrir vestan. Stundum höfum við gist í botni Önundarfjarðar, að Holti, sem býður upp á bleikar strandir og skemmtilega bryggju til stökkva í sjóinn eftir langar göngur upp á fjöll og á heiðar milli fjarða. Svo er auðvitað skylda að skella sér í sjóinn að gönguferð lokinni.“

Mynd/Úr einkasafni

Gönguferð með fjölskyldunni á svæðinu er minning sem er Álfrúnu mjög kær. 

„Það er mjög minnistætt sumarið sem við gengum á fjallið Gölt, sem er beint á móti Suðureyri við Súgandafjörð, tókum bát frá Suðureyri yfir fjörðinn og fórum upp á topp í 18 stiga hita, sól og logni - og útsýni yfir Vestfirðina sem skörtuðu sínu fegursta. Það var stórkostleg upplifun sem er greipt í minninguna.“

Systurnar á toppi GöltsMynd/Úr einkasafni
Þriggja ára og þreyttur í 10 tíma fjallgöngu hálfa leið að KaldbakMynd/Úr einkasafni
Mynd/Úr einkasafni

„Við Önundarfjörð eru svo auðvitað fallega Flateyri, stutt í bæði Ísafjörð og Suðureyri og sniðugt að taka hinn hringinn á leiðinni heim og kíkja til dæmis á Dynjanda.“

Fjölskyldumynd við DynjandaMynd/Úr einkasafni

„Vestfirðir eru því efstir á lista yfir áfangastaði sumarsins í mínum bókum, þetta sumarið og næstu.“

Perlur leynast víða á Íslandi og það er ljóst að sumarið 2020 verða Íslendingar á ferð og flugi um alla landshluta. Vísir verður á flakki með landanum í sumar. Veist þú um perlu sem landsmenn ættu ekki að missa af á ferðalagi? Segðu okkur frá og sendu okkur myndir á netfangið ritstjorn@visir.is. Við birtum valdar frásagnir hér á Vísi.


Tengdar fréttir








×