Isavia nælir í framkvæmdastjóra frá Advania og Vodafone Stefán Ó. Jónsson skrifar 7. febrúar 2020 15:15 Anna Björk Bjarnadóttir og Ragnheiður Hauksdóttir Isavia
Anna Björk Bjarnadóttir og Ragnheiður Hauksdóttir hafa verið ráðnar til Isavia. Báðar munu þær gegna stöðu framkvæmdastjóra á nýstofnuðum sviðum; Anna mun fara fyrir þjónustu- og rekstrarsviði Isavia og Ragnheiður verður framkvæmdastjóri stafrænnar þróunar og upplýsingatækni. Aukinheldur munu þær taka sæti í stjórn Isavia. Frá þessu greinir Isavia sjálft í tilkynningu til fjölmiðla í dag. Þar segir jafnframt að Ragnheiður hafi þegar tekið til starfa en Anna Björk taki við stöðu sinni næstkomandi mánudag. Ferill þeirra er beggja rakinn í tilkynningunni. Þar segir að Anna hafi síðast gegnt stöðu framkvæmdastjóra ráðgjafar og sérlausn hjá Advania en þar áður hafi hún verið hjá Símanum, þar sem hún sat í framkvæmdastjórn í fimm ár. Þá hafi hún verið framkvæmdastjóri ráðgjafafyrirtækisins Expectus og í stjórnum fjölmargra félaga og samtaka; eins og Festu, Sensa og Viðskiptaráðs Íslands. Anna Björk tekur sem fyrr segir við nýju þjónustu- og rekstrarsviði Isavia á Keflavíkurflugvelli sem annast daglegan rekstur Keflavíkurflugvallar. Ragnheiður kemur til Isavia frá Vodafone þar sem hún gegndi síðast stöðu framkvæmdastjóra einstaklingssviðs. Ragnheiður hefur einnig setið í stjórn Vertonets, hagsmunasamtaka kvenna í upplýsingatækni, og í fagráði Tækniþróunarsjóðs. Ragnheiður er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og Copenhagen Business School. Ragnheiður tekur við nýju stoðsviði Isavia sem ætlað er að annast stafræna þróun og rekstur upplýsingatækni hjá félaginu. Það fer með ábyrgð á rekstri upplýsingatækni hjá Isavia, annast stafræna þróun og nýsköpun og leiða stefnumörkun félagsins í stafrænni umbreytingu.
Keflavíkurflugvöllur Vistaskipti Mest lesið Tæpar 2500 krónur fyrir litla samloku á Geysi Neytendur Ísland að detta úr tísku Viðskipti innlent Semja um markaðssetningu verðmæts augnlyfs Viðskipti innlent „Árstíðarsveifla“ ástæða 57 uppsagna Viðskipti innlent Stýrir rekstrarsviði Skeljungs Viðskipti innlent Hreint hjá Vallý Viðskipti innlent „Krakkar sem gistu hjá okkur vissu ekki hvað var að gerast!“ Atvinnulíf Nýjungar á Hótel Grímsborgum Samstarf Brandenburg hreppti Ljónið í Cannes Viðskipti innlent Hinn almenni borgari þurfi ekki að dæla í sig steinefnum Neytendur Fleiri fréttir Brandenburg hreppti Ljónið í Cannes Stýrir rekstrarsviði Skeljungs Hreint hjá Vallý Semja um markaðssetningu verðmæts augnlyfs „Árstíðarsveifla“ ástæða 57 uppsagna Ísland að detta úr tísku Icelandair segir upp 57 flugmönnum Húsnæði B5 auglýst til leigu enn og aftur Selja höfuðstöðvarnar sem voru rýmdar vegna myglu „Betur borgandi ferðamenn“ enginn bjargvættur ferðaþjónustunnar Vetrarþjónustan þungur baggi á borginni Gerður Björt nýr framkvæmdastjóri rekstrarþjónustu Wise Kristján Andrésson gengur til liðs við Arion banka Running Tide segir upp öllu starfsfólki á Íslandi Stefnt á að virkjun Hvalár geti hafist eftir tvö ár Bjór, bingó og bíó í Vinabæ á ný Frederiksen víkur fyrir Bird Áhöfnum tveggja skipa Þorbjarnar sagt upp Sigurður Tómasson til liðs við Origo Hrefna og Unnur til Novum Easyjet flýgur frá Akureyri til Manchester í vetur 500 manns sóttu um störf hjá OCHE Reykjavík Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Skuldar þrotabúi föður síns fleiri milljarða Fleiri farþegar og betri nýting Gengu frá 135 milljarða samningi um endurfjármögnun skulda Fjárfesta fyrir þrjá milljarða í Reykjanesbæ og Hafnarfirði Ein og hálf milljón farþega á fyrstu fimm mánuðum ársins Ingibjörg Ösp yfir nýrri rekstrarráðgjöf Expectus Þrír nýir stjórnendur hjá Festi Sjá meira