Innlent

Svona var tólfti upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn og Alma Möller landlæknir hafa staðið í ströngu undanfarnar vikur.
Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn og Alma Möller landlæknir hafa staðið í ströngu undanfarnar vikur. Vísir/Vilhelm

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra boðaði til upplýsingafundar með fjölmiðlum klukkan 14 í dag í Björgunarmiðstöðinni Skógarhlíð.

Á fundinum fóru Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn, Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, og Alma D. Möller, landlæknir yfir stöðu mála með tillti til COVID-19.  Smit hér á landi eru orðin á annað hundrað.

Jafnframt ræddi María Mjöll Jónsdóttir, deildarstjóri upplýsingadeildar utanríkisráðuneytisins, um helstu vendingar erlendis og áhrif á íslenska ferðamenn.

Fundurinn var líkt og fyrri fundir í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 3. Upptaka af fundinum í heild sinni er aðgengileg hér að neðan. Þá má lesa allt það helsta sem fór fram á fundinum í vaktinni fyrir neðan spilarann. 




Fleiri fréttir

Sjá meira
×