Innlent

Reyndi að ná peningum upp úr Peningagjá

Samúel Karl Ólason skrifar
Ekki fylgir sögunni hvernig viðkomandi reyndi að ná peningum upp úr gjánni.
Ekki fylgir sögunni hvernig viðkomandi reyndi að ná peningum upp úr gjánni. Vísir/Vilhelm

Mjög fáir gestir hafa lagt leið sína í þjóðgarðinn á Þingvöllum að undanförnu vegna heimsfaraldurs nýju kórónuveirunnar. Íslendingur var þó gómaður við það í síðustu viku að reyna að ná peningum upp úr Peningagjá. Heilt yfir er talið að tekjutap þjóðgarðsins vegna faraldursins verði um 300 milljónir króna.

Í samtali við Fréttablaðið segir Einar Á.E Sæmundsen, þjóðgarðsvörður, að búið sé að leita eftir fjárframlagi frá ríkinu vegna reksturs þjóðgarðsins í sumar. Það sé þó enn óljóst hvað úr verður og hvernig rekstur og þjónusta þjóðgarðsins verður.

Varðandi peningagjárþjófinn áðurnefnda var hann gómaður af landverði sem var á vakt. Einar segir að þjófurinn hafi látið sé segjast eftir stutt tiltal og hætt að reyna að ná peningum upp úr gjánni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×