Atvinnulíf

Að komast í rútínu á ný eftir páskafrí

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Fyrsta vinnuvikan er oft erfið eftir góð frí.
Fyrsta vinnuvikan er oft erfið eftir góð frí.

Að komast aftur í rútínu eftir frí er oft hægara sagt en gert. Svefninn er í algjöru rugli. Garnirnar gaula sem aldrei fyrr. Einbeitingin er erfið og þú veist ekki á hverju þú átt að byrja eða hvað þú ætlar að gera næst. Já, þótt flestir hafi ferðast innanhús þessa páskana er líklegt að páskarnir þetta árið eigi eitt sameiginlegt við hefðbundin páskafrí: Það er erfitt að komast í rútínuna á ný.

Hér eru nokkur atriði sem geta hjálpað til.

1. Verum þakklát

Það fyrsta er að vera þakklát fyrir það að hafa vinnu. Því miður eru ekki allir svo heppnir. Þessi hugsun ein og sér, ætti að hjálpa mörgum að komast í réttan gír fyrir komandi vinnuviku.

Hér eru góð ráð til að ná tökum á fjarvinnu.

2. Verkefnalistinn

Forgangsraðaðu verkefnunum þínum þannig að þú gleymir þér í verkefnum. Með því að vinna í einhverju sem þér finnst skemmtilegt er líklegra að þú haldir einbeitingunni og tíminn líður hratt.

Hér eru góð ráð til að búa til verkefnalista.

3. Haltu þér vel vakandi

Að fara snemma að sofa í kvöld er eitt stærsta markmið dagsins. Mundu eftir vatninu og að borða ekki þungan mat sem gerir þig syfjaðan.

Hér eru góð ráð til að halda okkur betur vakandi yfir vinnudaginn.

4. Vertu virkur í samskiptum við samstarfsfélaga

Það getur keyrt okkur betur í gang að vera virkur í samskiptum við samstarfsfélaga. Fólk í fjarvinnu ætti að vera komið upp á lagið með einhvers konar samskipti, Teams, Zoom, Messenger, Facebook-hópsíður. Taktu þátt!

Hér eru algeng mistök á fjarfundum.

5. Ákveddu strax að gera eitthvað skemmtilegt

Þetta er ágætis ráð og þarf ekki að vera flókið. Sumir gætu tengt þetta við góða hreyfingu eða útivist. Aðrir að elda góðan hollusturétt í kvöld eða að gúggla einhverja nýja uppskrift. Að gera eitthvað skemmtilegt getur spannað frá fimm mínútum og uppúr. Notaðu hugmyndarflugið!

Hér er hugmynd að virkni-bingó sem fjölskyldan getur gert saman.

6. Komdu skikki á heimilið

Það eru fleiri en þú sem þurfa að koma sér í rútínu. Sum börn byrja í skóla strax í dag, önnur í fyrramálið. Öll dagskrá heimilisins þarf að komast í réttar skorður, þar með talið hefðbundnir matmálstímar, að hreinsa uppúr þvottakörfunni, kaupa nesti og sjá til þess að eitthvað fleira en leifar af páskaeggjum sé til í ísskápnum. Hverjir ætla að gera hvað?

Hér eru nokkur ráð fyrir þá sem eru heima í fjarvinnu með börnin heima líka.

7. Nýttu þér letina til góðs

Viðurkenndu fyrir sjálfum þér að hugurinn er ekki alveg komin á fulla ferð og nýttu þér letitilfinninguna. Til dæmis gæti verið ágætt að gera sér markmiðalista fyrir komandi daga og vikur því jú, það blasa svo sannarlega við nýjar áskoranir í vinnunni. 

Hér er ágætis lesning um hvernig leti getur nýst vel í vinnu.

8. Farðu snemma að sofa

Að koma svefninum í rútínu er eitt mikilvægasta verkefni vikunnar. Að ákveða hvenær maður ætlar að fara að sofa, er mjög gott ráð en virkar þó aðeins ef við það er staðið.

Fyrir andlega- og líkamlega heilsu er svefn lykilatriði en svefn er líka mikilvægur fyrir atvinnulífið, sjá Vilja innleiða svefnstjórnun á vinnustaði.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×