Bein útsending: Þáttur íþrótta í einstökum árangri forvarna á Íslandi Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 7. apríl 2020 11:15 Dæmi um umfjöllun í erlendum miðlum um forvarnir á Íslandi. Mosaicscience.com
Þáttur skipulagðrar íþróttaþátttöku í hinu íslenska forvarnarmódeli hefur vakið heimsathygli. Í öðrum fyrirlestrinum í fyrirlestraröð Háskólans í Reykjavík og Vísis mun Margrét Lilja Guðmundsdóttir, kennari við íþróttafræðideild HR og sérfræðingur hjá Rannsóknum & greiningu, beina sjónum að því hvað íslenskt íþróttastarf hefur umfram það sem tíðkast víðast hvar erlendis. Fyrirlesturinn hefst klukkan 12 og verður í beinu streymi hér að neðan. Í íslenskum rannsóknum á íþróttaiðkun kemur fram að börn og ungmenni sem stunda íþróttir með íþróttafélagi eru ólíklegri til að neyta vímuefna samanborið við þau sem ekki stunda íþróttir. Börn og ungmenni sem stunda íþróttir með íþróttafélagi eru einnig líklegri til að standa sig betur í námi, þau meta líkamlega og andlega heilsu sína betur eftir því sem þau æfa meira og telja sig í betri líkamlegri þjálfun en þau sem æfa lítið eða ekkert. Auk þess er yfirgæfandi meirihluti barna og ungmenna á Íslandi ánægð á æfingum, ánægð með þjálfara sinn sem og íþróttafélagið. Þessi mikla ánægja unglinga með starf íþróttafélaga er staðfesting á því góða starfi sem þar er unnið um allt land. Íslenskt íþróttastarf fer fram í umhverfi sem á sér sögu, hefðir og viðmið og er með mikilli aðkomu foreldra. Það sem helst skiptir máli í skipulögðu starfi er að það sé reglumiðað og undir handleiðslu faglærðs þjálfara. Hlutverk þjálfara og ábyrgð hans í uppeldi iðkenda er ótvírætt og skiptir því sköpum hvaða áherslur hann leggur í starfi sínu á hluti eins og sigur í keppni, drengilega framkomu og heilbrigt líferni.
Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Innlent Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Sjá meira