Olíuverð lækkaði 4. maí 2006 15:57 Mynd/AFP
Olíuverð lækkaði um rúman dal á helstu mörkuðum í dag í kjölfar þess að orkumálaráðuneyti Bandaríkjanna greindi frá því í vikulegri greinargerð sinni að olíubirgðir í landinu hefðu aukist. Þetta er annar dagurinn í röð sem olíuverð lækkar. Verð á olíu, sem afhent verður í næsta mánuði, lækkaði um 1,18 Bandaríkjadali á mörkuðum í New York í Bandaríkjunum og stendur verðið nú í 71,10 dollurum á tunnu. Verðið lækkaði um 2,33 dali á markaðnum í gær. Þá lækkaði jafnframt verð á Norðursjávarolíu á markaði í Lundúnum í Bretlandi um 1,02 Bandaríkjadali og stendur það í 71,63 dollurum á tunnu. Árásir skæruliða á olíuvinnslustöðvar í Nígeríu og vaxandi spenna vegna kjarnorkuáætlunar Írana er ástæða þess að heimmarkaðsverð á olíu hefur hækkað síðustu vikurnar. Íranar framleiða mikið magn af olíu og gæti svo farið að þeir dragi úr framleiðslu sinni verði gripið til refsiaðgerða gegn þeim vegna kjarnorkuáætlana þeirra.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira