Manchester United kjöldró Newcastle Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 12. janúar 2008 19:13 Ronaldo skoraði þrennu í dag. Nordic Photos / Getty Images
Manchester United gerði sér lítið fyrir og skoraði sex mörk gegn lánlausu liði Newcastle á heimavelli sínum í dag. Liðið er þar með komið á topp ensku úrvalsdeildarinnar á nýjan leik. Cristiano Ronaldo skoraði þrjú marka United, Carlos Tevez tvö og Rio Ferdinand eitt. Alan Smith fékk svo að líta rauða spjaldið fyrir að mótmæla því að síðasta mark United var dæmt gilt. Smith er fyrrum leikmaður United og var klappað lof í lófa er hann gekk af velli á lokamínútu leiksins. Staðan var markalaus í hálfleik þrátt fyrir að United hafði verið með mikla yfirburði í fyrri hálfleik. Newcastle átti reyndar að vera marki yfir þar sem Michael Owen skoraði mark fyrir Newcastle sem var ranglega dæmt af vegna rangstöðu. Smith var svo dæmdur brotlegur snemma í síðari hálfleik er Cristiano Ronaldo féll rétt utan Newcastle og aukaspyrna var dæmd. Ronaldo skoraði sjálfur úr spyrnunni. Tevez bætti svo við öðru marki eftir klaufagang í varnarleik Newcastle og Ronaldo bætti því þriðja við með laglegu skoti eftir sendingu Tevez. Rio Ferdinand skoraði fjórða mark Uited með góðu skoti af stuttu færi eftir sendingu Wayne Rooney. Ronaldo fullkomnaði svo þrennuna með marki sem Rooney lagði enn og aftur upp. Tevez skoraði svo umdeilt mark þegar hann skaut í slána en þaðan fór boltinn á marklínuna. Erfitt var að sjá hvort að boltinn hafi allur farið inn fyrir marklínuna en markið var engu að síður dæmt gilt. United hefur því jafnað Arsenal að stigum en þökk sé mörkunum sex er United með miklu betri markatölu og er því í toppsæti deildarinnar á nýjan leik.
Mest lesið Uppgjörið: Ísland - Króatía 29-30 | Aftur súrt tap gegn Króötunum hans Dags Handbolti Líkur Íslands á verðlaunum hafa snaraukist Handbolti Botna ekkert í Snorra: „Við erum teknir í bólinu“ Handbolti „Ég er að fara aftur til Svíþjóðar“ Handbolti Össur gagnrýndi fýlulegar og miskunnarlausar spurningar Loga Handbolti „Hann er sonur minn“ Fótbolti „Tveggja ára barn að labba við sundlaugarbakkann og enginn gerði neitt“ Handbolti Einkunnir Strákanna okkar á móti Króatíu: Basl á Bóndadaginn Handbolti Skýrsla Vals: Ekki aftur Handbolti Aron Kristjáns tapaði líka með minnsta mun Handbolti Fleiri fréttir Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Sjá meira