Ferðalög

Perlur Íslands: „Einstök orka þarna og hvergi betra að vera“

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Andreu líður hvergi betur en á Hvaleyrarvatni.
Andreu líður hvergi betur en á Hvaleyrarvatni. Mynd/Andrea Magnúsdóttir

„Það er mjög erfitt að velja einn stað á Íslandi en ég elska að ferðast um landið okkar. Oftast hef ég farið norður og á flestar minningar þaðan síðan ég var lítil og vel norðurland bæði yfir sumartíma og til að fara á skíði á veturna,“ segir fatahönnuðurinn og verslunareigandinn Andrea Magnúsdóttir. 

Hennar uppáhalds ferðamannastaður á Íslandi er Ólafsfjörður.

Uppáhalds ferðamannastaður Andreu er Ólafsfjörður.Mynd/Andrea Magnúsdóttir

„Þaðan á ég óteljandi minningar síðan ég man eftir mér en amma mín og afi bjuggu þar.“

Andrea segir að draumaferð norður sé Hofsós - Siglufjörður - Ólafsfjörður - Akureyri – Mývatn.

Stuðlabergið við Hofsós.Mynd/Andrea Magnúsdóttir

„Ég byrja og enda allar ferðir norður með stoppi í uppáhalds sundlauginni minni á Hofsósi.“

Hofsóssundlaugin er algjör perla með stórbrotið útsýni yfir Skagafjörðinn og Drangey.Mynd/Andrea Magnúsdóttir

 „Á Ólafsfirði er mér mjög minnistæður dagur þegar ég fór á bæði sæþotu og upp á Múlakollu þá sá ég Ólafsfjörð frá glænýju sjónarhorni sem var magnað. Þessi dagur situr í mér, tilfinningin þegar ég stóð uppi á topp og horfði yfir fjöllin var ólýsanleg, svo ótrúlega fallegt þarna. Og að þeysast um á sæþotu og sjá múlann frá því sjónahorni var geggjað. Næst langar mig að prófa fjallaskíði á Tröllaskaga.“

Ólafsfjörður í allri sinni dýrð.Mynd/Andrea Magnúsdóttir

Hún stenst svo ekki mátið að bæta við einum gullmola í hennar nánasta umhverfi. Andrea býr með fjölskyldu sinni í Garðabæ og rekur verslunina Andrea á Norðurbakkanum í Hafnarfirði.

„Ein perla hér á höfuðborgarsvæðinu sem ég elska að fara á til að hlaða batteríin er Hvaleyrarvatn. Þangað fer ég oft í viku og labba hringinn eða hringi. Það er einstök orka þarna og hvergi betra að vera.“

Andrea er dugleg að grípa með sér falleg blóm í vasa í gönguferðum sínum í kringum Hvaleyrarvatn.Mynd/Andrea Magnúsdóttir

Perlur leynast víða á Íslandi og það er ljóst að sumarið 2020 verða Íslendingar á ferð og flugi um alla landshluta. Vísir verður á flakki með landanum í sumar. Veist þú um perlu sem landsmenn ættu ekki að missa af á ferðalagi? Segðu okkur frá og sendu okkur myndir á netfangið ritstjorn@visir.is. Við birtum valdar frásagnir hér á Vísi.








×