Hækkun og lækkun vestanhafs 17. október 2007 20:34 Frá hlutabréfamarkaði í Bandaríkjunum. Mynd/AFP
Helstu hlutabréfavísitölur í Bandaríkjunum enduðu bæði fyrir ofan og neðan núllið eftir viðskiptadaginn vestanhafs. Fjármálaskýrendur segja skýringa að leita í mismunandi afkomutölum bandarískra stórfyrirtækja sem hafi verið að skila sér síðustu daga eftir óróleika á fjármálamarkaði. Hins vegar er óttast að samdráttur á húsnæðislánamarkaði geti verið dragbítur á hagkerfinu allt fram á næsta ár. Þannig hefur samdráttur á bandarískum fasteignalánamarkaði sett skarð í afkomu flestra fjármálastofnana á meðan tæknigeirinn virðist hafa komið ágætlega undan óróanum. En fleira spilar inn í, ekki síst greinagerð bandaríska seðlabankans sem birt var í dag. Þar kemur fram að líkur séu á að skellurinn á fasteignamarkaði í Bandaríkjunum muni skila sér í minni hagvexti þar í landi allt fram á næsta ár. Í greinagerðinni segir ennfremur að vöxtur neyslu og fjárfestinga sé ójafn þar sem fyrirtæki hafi haldið neyslunni uppi á meðan dregið hafi úr vexti einkaneyslu. Einkaneysla er stór liður í hagvaxtartölum vestanhafs. Dragi úr henni má reikna með að það hafi áhrif á hagvöxt. Fjármálaskýrendur telja, að vegna þessa megi reikna með nokkuð verri afkomu fyrirtækja á þriðja ársfjórðungi en reiknað hafði verið með áður en niðursveifla á mörkuðum reið yfir vestanhafs eftir miðjan júlí. Dow Jones-hlutabréfavísitalan lækkaði um 0,15 prósent við lokun viðskiptadagsins. Nasdaq-vísitalan hækkaði um 1,04 prósent á sama tíma og S&P-vísitalan um 0,18 prósent.
Mest lesið Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Viðskipti innlent Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Viðskipti innlent Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Viðskipti erlent Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Viðskipti innlent Regluleg viðskipti hjá Orkunni skila viðskiptavinum raunverulegum ávinningi Samstarf Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Viðskipti innlent Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Neytendur Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Viðskipti innlent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Viðskipti innlent Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Viðskipti innlent Fleiri fréttir OpenAI setur einnig stefnuna á hlutafjárútboð Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira