Enski boltinn

Uppsögn Keane kom Ferguson á óvart

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Keane og Ferguson ganga af velli eftir leik United og Sunderland í september í fyrra.
Keane og Ferguson ganga af velli eftir leik United og Sunderland í september í fyrra. Nordic Photos / Getty Images

Brotthvarf Roy Keane frá Sunderland í gær kom Alex Ferguson, stjóra United, mjög á óvart.

Keane var á sínum tíma lykilmaður í liði United undir stjórn Ferguson en United tekur einmitt á móti Sunderland í ensku úrvalsdeildinni um helgina.

„Þetta kom mér á óvart," sagði Ferguson. „Það er oft erfitt að greina á milli staðreynda og sögusagna í knattspyrnunni. Maður er því aldrei viss hvað sé satt og rétt í því sem greint er frá í fjölmiðlum."

„Roy var frábær leikmaður þegar hann lék með United og þetta er mikil synd. Við óskum honum alls hins besta."

Ferguson sagði að ómögulegt væri að segja hvenær hann myndi snúa aftur í boltann.

„Roy er afar umdeild persóna. Hann hafði alltaf eitthvað að segja um knattspyrnuna. Þannig var hann líka sem leikmaður. En hann stóð sig vel hjá Sunderland."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×