Domino's Körfuboltakvöld: Teitur Örlygs hefði haldið Simmons frekar en Geiger Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. mars 2020 13:00 Gerel Simmons var með 17,3 stig að meðaltali í leik með Tindastól. Vísir/Bára
Tindastólsmenn töpuðu mikilvægum stigum á heimavelli í gær á móti langneðsta liði deildarinnar og þetta tap gæti mögulega kostað liðið heimavallarrrétt í úrslitakeppninni. Kjartan Atli Kjartansson og félagar hans í Domino´s Körfuboltakvöldi tóku Stólana fyrir í þætti sínum í gær og fóru meðal annars ofan í þá ákvörðun Tindastóls að reka Gerel Simmons í landsleikjahléinu. „Það eru margir pirraðir fyrir norðan núna,“ sagði Teitur Örlygsson og að hans mati þá gerðu Stólarnir mistök með því að skipta Gerel Simmons út fyrir Deremy Geiger. „Ég var búinn að segja það áður að ég hefði haldið Simmons frekar. Mér fannst Simmons vera mikið betri sóknarmaður. Núna þegar mótspyrnan kom frá Fjölni, liði sem er fallið úr deildinni, þá fannst mér Geiger verða bara lítill í fyrri hálfleik,“ sagði Teitur Örlygsson, sérfræðingur í Körfuboltakvöldi. „Hann skaut boltanum mjög illa og var að held 10/1 eða 11/1 áður en hann setti niður þessa tvo þrista í fjórða leikhlutanum,“ sagði Teitur. Deremy Geiger hefur ekki skorða minna í leik í vetur og þetta var líka langversta skotnýting hans í einum leik í Tindastólsbúningnum. Geiger hitti aðeins úr 3 af 12 skotum sínum í leiknum. „Hann nánast bjargaði leiknum sínum með því að setja niður þessa tvo þrista í lokin,“ sagði Sævar Sævarsson en Teitur greip frammi í fyrir honum: „Nei, nei hann gerði það ekki,“ sagði Teitur. „Hefðu þeir getað náð þessu í framlengingu og unnið þá hefði hann getað bjargað andlitinu,“ útskýrði Sævar frekar. Það má sjá alla umfjöllunina um Tindastól og kanaskiptin hér fyrir neðan. Klippa: Körfuboltakvöld: Teitur Örlygs hefði haldið Simmons frekar en Geiger
Dominos-deild karla Körfuboltakvöld Mest lesið Segist „hafa dáið fjórum sinnum“ og er nánast óþekkjanlegur í dag Sport Síðasti séns á að vinna milljónir Fótbolti Hneykslast á kostnaði við kveðjuveislu Þóris og Lio Handbolti Valdi Ísland fram yfir Noreg: „Ég er meiri Íslendingur“ Fótbolti Þegar náttúran kallar í miðjum klíðum Sport Danska þjóðin í áfalli: „Verra en okkar versta martröð“ Sport Fær ekki heimsmet sitt viðurkennt: „Þetta er kjánalegt“ Sport Stefán mætir Liverpool þrátt fyrir fráfall Jota Enski boltinn Sex hafa ekkert spilað á EM Fótbolti Ajax riftir samningi Jordans Henderson Fótbolti Fleiri fréttir Birkir Hrafn í NBA akademíunni „Þetta gerist rosa hratt“ Sengun í fantaformi í sumarfríinu Hægt að gista í glæsihúsi Michael Jordan Shai Gilgeous-Alexander og Angel Reese framan á 2K26 Sengun í fantaformi í sumarfríinu Jokic framlengir ekki að sinni Verður fimmti launahæsti íþróttamaður í heimi Fylkir og Valur í formlegt samstarf Mikil blóðtaka fyrir Valsmenn Sjö lið skiptust á sex leikmönnum Tyrese Haliburton missir af öllu næsta tímabili KR semur við ungan bandarískan framherja Hægt að skoða EuroBasket bikarinn og fá áritun hjá strákunum Þórsarar semja við Grikkja og Bandarikjamann Rauða pandan í NBA útskrifuð af sjúkrahúsi Helgi Magg hættir í Körfuboltakvöldi og semur við Grindavík Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Skórnir hennar seldust upp á mínútu Mike Brown sagður vera að taka við New York Knicks Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn James tekur einn dans enn í það minnsta Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Fotios spilar 42 ára með Fjölni Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Sjá meira