Bílar

Ford deilir gögnum sjálfkeyrandi bíla

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Mynd sem sýnir gögnin í gegnum tól sem Ford skaffar.
Mynd sem sýnir gögnin í gegnum tól sem Ford skaffar.

Bílaframleiðandinn Ford hefur deilt gögnum úr prófunum sjálfkeyrandi bíla framleiðandans. Markmiðið er að stuðla að og auka rannsóknir og þróun á sviði sjálfkeyrandi bíla.

Eðli sjálfkeyrandi bíla er slíkt að þeir þurfa umtalsvert magn af gögnum til að virka. Slíkt getur verið erfitt að verða sér úti um. Til að auðvelda öllum sem vilja að þróa kerfi og hugbúnað fyrir sjálfkeyrandi bíla hefur Ford opnað aðgang að gagnasafn sem fræðasamfélagið og rannsakendur geta nýtt sér.

„Það er engin betri leið til að upphefja rannsóknir og þróun en að ganga úr skugga um að fræðasamfélagið hafi öll þau gögn sem það þarf til að búa til góða algrími (e. algorithms) fyrir sjálfkeyrandi bíla, segir í færslu fyrirtækisins á Medium.

Stutt í sjálfkeyrandi bíla

Ford hafði ætlað að kynna fyrstu kynslóð sína af sjálfkeyrandi bílum á næsta ári, en því hefur nú verið frestað til 2022.

„Að gefnum þeim áskorunum sem nú ganga yfir sem og nauðsyn þess að skilja langtíma áhrif COVID-19 á hegðun viðskiptavina, hefur Ford ákveðið að fresta kynningu sjálfkeyrandi bíla sinna til 2022,“ sagði í tilkynningu frá framleiðandanum.

Gögnunum var safnað yfir eitt ár og kemur frá mörgum sjálfkeyrandi tilrauna-bílum. Meðal þess sem finna má í gögnunum eru leysigeislaskannanir, myndavélaskynjaragögn, GPS hnit og aðrar almennar upplýsingar um ferðina, ásamt þrívíddar líkani af skýjum og yfirborði jarðar. Ford deilir einnig tóli sem gerir kleift að lesa úr gögnunum og birta sem mynd.

Sjálfkeyrandi Ford.

Önnur fyrirtæki hafa deilt gögnum úr sjálfkeyrandi bílum í langan tíma, Waymo má nefna þar sem dæmi. Það sem sker Ford úr er hversu gríðarlegt umfang gagna er um að ræða. Í fyrsta lagi að þau spanni heilt ár. Í öðru lagi að þau taki til mismunandi veðurfars t.d. rigningar, snjókomu, sólskins og skýjaðra daga. Í þriðja lagi þá var gögnunum safnað á Detroit svæðinu, þar sem bílarnir þurftu að glíma við þéttar byggðir, hraðbrautir, göng, hljóðlát íbúðahverfi, flugvelli, framkvæmdasvæði og gangandi vegfarendur. Þessi gögn eru því til þess fallin að gefa rannsakendum byr undir báða vængi.

Fleiri en einn bíll

Gögnin ná til nokkurra bíla sem þýðir að hægt er að skoða hvað gerist þegar þeir þurfa að eiga í samskiptum hver við annan. Einn þeirra gæti til að mynda skynjað eitthvað eða vitað eitthvað sem aðrir bílar hefðu gott af því að taka með í reikninginn.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×