
Hvað sem er: Opið bréf til Sigmundar Davíðs, formanns Miðflokksins
Sigmundur Davíð, það var einu sinni forsætisráðherra á Íslandi sem samdi við kröfuhafa í þrotabú allra íslensku bankanna. Í húfi voru gífurlegir hagsmunir þjóðarinnar og má leiða að því rök að það hafi sjaldan eða aldrei verið gerðir samningar sem skiptu fólkið í landinu meira máli. Svo kom allt í einu í ljós að forsætisráðherrann var sjálfur einn af kröfuhöfunum. Hann var sem sagt að semja við sjálfan sig fyrir hönd þjóðarinnar. Þegar honum var bent á þetta hélt hann því fram að það væri ekki svo vegna þess að það væri konan hans en ekki hann sjálfur sem ætti kröfurnar. Sú skýring virkar einfaldlega ekki vegna þess að fjárhagslegir hagsmunir hjóna eru þannig samofnir að hagsmunir hennar eru í raun hagsmunir hans. Í stað þess að skammast sín fór forsætisráðherrann að agnúast út í blaðamennina sem sögðu þjóðinni frá þessu; hélt því fram að um væri að ræða samsæri gegn honum meðan þjóðin leit á þetta sem samsæri hans gegn henni. Alvarleiki málsins er með öllu óháður því hvernig samningar náðust við kröfuhafa. Það eru einfaldlega býsna stór mistök þegar forsætisráðherra á hagsmuna að gæta í því að ná slæmum samningi fyrir hönd þjóðar sinnar. Þú varst þessi forsætisráðherra, Sigmundur Davíð.
Svo voru það einu sinni nokkrir alþingismenn sem fóru út á Klausturbarinn og drukku meira en góðu hófi gegndi og glötuðu um stundarsakir þeim hömlum sem leggja af mörkum til kurteisi í tali manna á milli. Afleiðingin var sú að þessir kjörnu fulltrúar þjóðarinnar sögðu ýmislegt sem var alls ekki við hæfi. Þetta er í sjálfu sér ekki stórmerkilegt vegna þess að áfengi er eitur sem breytir starfsemi heilans á þann hátt að hann hugsar öðru vísi en honum er eðlilegt og það sem frá honum kemur í orðum hefur ekki bara tilhneigingu til þess að vera drafandi heldur líka óskynsamlegt. Flest okkar hafa lent í þessu og fæst okkar hafa efni á því að hneykslast á því að svona geti gerst yfirhöfuð þótt ýmislegt af því sem heyrðist á Klausturbarnum í þetta skiptið bendi til þess að þingmennirnir hafi ekki beinlínis verið á góðum stað áður en drykkjan hófst. Það sem gerði Klausturferð þingmannanna virkilega athyglisverða eru viðbrögð þeirra við því að samtöl þeirra voru tekin upp og spiluð fyrir eyrum landsmanna. Í stað þess að viðurkenna einfaldlega að þeir hafi verið fullir og sagt alls konar vitleysu sem þeir allsgáðir meini ekki og skammist sín fyrir mátti á þeim skiljast að sá sem tók upp samtalið væri ábyrgur orða þeirra en ekki þeir sjálfir. Samkvæmt þessari nýstárlegu túlkun á tilvistarhyggjunni væru allir þeir sem horfa á tré falla í skóginum í raun réttri skógarhöggsmenn. Sigmundur Davíð, þú ert einn af þingmönnunum á Klausturbarnum og sá sem leiddi þá í tilraunum til þess að kenna konunni sem tók up samtalið um ykkar eigin sóðaskap.
Og svo skrifaðirðu tvær greinar, Sigmundur Davíð, sem birtust í Morgunblaðinu um sýndarstjórnmál sem bendir til þess að þú ætlist til þess að lesendur hafi gleymt þeim atburðum tveimur sem er lýst hér að ofan. Það er nefnilega erfitt að ímynda sér betri dæmi um samspil sýndarmennsku og stjórnmála en þá tvo. Í fyrri greininni fjallarðu um loftslagsbreytingarnar ógnvænlegu eða hnattræna hlýnun og dæmir allar tilraunir til þess að vinna gegn þeim sem sýndarmennsku. Þú gengur meira að segja svo langt að hæðast að lítilli stúlku sænskri sem hefur náð athygli heimsbyggðarinnar fyrir það hversu skýrlega hún hefur tjáð áhyggjur sínar af framtíðinni. Það er niðurstaða mælinga að hnötturinn er að hitna. Þess vegna er hnattræn hlýnun ekki kenning heldur staðreynd. Það er ósönnuð kenning að maðurinn leggi af mörkun til hlýnunarinnar með lífsháttum sínum. Það er hins vegar búið að leiða töluverðar líkur að því að sú kenning sé rétt. Það er líka ósönnuð kenning að maðurinn geti minnkað hlýnunina með því að breyta lífsháttum sínum. Það er einnig búið að leiða nokkrar líkur á því að sú kenning sé rétt hvort svo sem fyrri kenningin sé rétt eða röng. Það er hafið yfir allan vafa að ef hnötturinn heldur áfram að hitna eins hratt og hann gerir í dag er stutt í að það fari að skerða lífsskilyrði mannsins. Þess vegna er það skylda okkar við börn okkar, barnabörn og komandi kynslóðir að ganga út frá því sem vísu að seinni kenningin sé rétt af því að hitt væri óásættanleg uppgjöf. Það má síðan um það deila hvað séu bestu aðferðirnar til þess að kæla okkar ástkæra hnött og hversu miklu við ættum að fórna af lífsgæðum augnabliksins til þess að bjarga lífum framtíðarinnar. Það er ljóst á lestri greinar þinnar, Sigmundur Davíð, að þú ert einn af þeim sem vilja ekki miklu fórna og síðan hitt að sú fyrirlitning sem þú sýnir hugmyndinni um endurheimt votlendis bendir til þess að þú búir ekki að miklum skilningi á líffræði, efnafræði eða þeirri almennri þekkingu sem býr að baki hugmyndum annarra um það hvernig best sé að taka á vandanum. Þú dæmir hugmyndir annarra sem sýndarmennsku án þess að benda á aðrar betri sem er bara ein aðferðin við að hvetja til þess að ekkert sé að gert.
Seinni greinin þín fjallar um þá sem þú kallar förufólk og eru þeir sem flýja fátækt, stríð og aðra eymd þriðja heimsins. Þú bendir réttilega á að heimurinn sé ekki að höndla vel þann vanda sem af þessu hlýst. Það er hins vegar í mínum huga ekkert rétt og allt rangt við þá ályktun sem má lesa milli línanna hjá þér að þess vegna eigum við taka á þessu fólki af hörku þegar það rekur á okkar fjörur sem flóttafók í leit að næturstað. Þú nefnir sem dæmi um vandann ástandið á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó í valdatíð Obama en minnist ekki orði á þá hörmung sem Trump hefur valdið á sama stað. Það má skilja sem svo að þú lítir aðgerðir Trumps sem lausn á vandanum; að reisa himinháa múra á landamærum við þau lönd þar sem eymd ríkir og skilja að kornabörn og foreldra þeirra ef þau lauma sér inn í landið svo að öðrum skiljist að það sé eins gott fyrir þau að halda sig heima.
Það er ljóst á þeim orðum sem þú birtir í greinunum tveimur í Morgunblaðinu að í leit þinni að pólitískum stuðningi í samfélaginu ert þú að gera út á þá vonlausu og firrtu og í stað þess að varða þeim leið út úr því ástandi ertu að ala á vonleysinu og firringunni. Þú ert að fylgja fordæmi öfgaflokka í Evrópu og Trumps í Bandaríkjunum. Þetta er langt fyrir neðan virðingu þess Sigmundar Davíðs sem kom eins og ferskur blær inn í íslensk stjórnmál fyrir nokkrum árum. Hann barðist fyrir hugsjónum sínum. Í dag er býsna erfitt að átta sig á hvert þú ert að fara nema það sé hvað sem er fyrir hvaða stuðning sem er.
Skoðun

Málfrelsi og mörk þess á vettvangi lýðræðisins
Helga Vala Helgadóttir skrifar

Sjókvíaeldi á Íslandi fjarstýrt með gervigreind frá Noregi
Ingólfur Ásgeirsson skrifar

Hvers vegna skipta hagsmunir verslanakeðja meira máli en öryggi barna í Ásahverfi Reykjanesbæ?
Ólafur Ívar Jónsson skrifar

Kjarnorkuákvæðið: Neyðarhemill en ekki léttvægt leikfang popúlista
Kristinn Karl Brynjarsson skrifar

Stjórnarandstaðan er vannýtt auðlind
Jón Daníelsson skrifar

Ef Veðurstofan spáði vitlausu veðri í 40 ár, væri það bara í lagi?
Björn Ólafsson skrifar

Hægri sósíalismi
Jón Ingi Hákonarson skrifar

5 ára vegferð að skóla framtíðarinnar – eða ekki!
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Ójafnvægi í jöfnunarkerfinu
Anna Sigríður Guðnadóttir,Halla Karen Kristjánsdóttir,Lovísa Jónsdóttir skrifar

Það sem ekki má segja um það sem enginn vill sjá
Viðar Hreinsson skrifar

Krónan, Nettó, Hagkaup, Bónus - það er kominn tími á formlega sniðgöngu
Helen Ólafsdóttir skrifar

Löggæslumál og aðstöðuleysi í Búðardal – ákall um viðbragð og aðgerðir
Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar

Listin að verða fullkomlega ósammála sjálfri sér á mettíma
Þórður Snær Júlíusson skrifar

Þingmenn auðvaldsins
Karl Héðinn Kristjánsson skrifar

Arðgreiðslur í sjávarútvegi: Staðreyndir gegn fullyrðingum
Elliði Vignisson skrifar

Verðugur bandamaður?
Steinar Harðarson skrifar

Við þurfum nýja sýn á stjórnmál okkar - Mamdani-sýn
Hlynur Már Vilhjálmsson skrifar

Sósíalistaflokkurinn heimilislaus - hvað næst?
Trausti Breiðfjörð Magnússon skrifar

Rán um hábjartan dag
Guðbergur Egill Eyjólfsson skrifar

Af hverju er verðbólga ennþá svona há?
Ólafur Margeirsson skrifar

Sól, sumar og símafriður: 10 ráð varðandi skjánotkun í sumarfríinu
Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir,Skúli Bragi Geirdal skrifar

Uppbygging hjúkrunarheimila
Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar

Jafnrétti grundvallarforsenda friðar og öryggis í heiminum
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar

Með skynsemina að vopni
Anton Guðmundsson skrifar

Af hverju er ekki 100 klst. málþóf á Alþingi um alvarlega stöðu barna?
Grímur Atlason skrifar

Knattspyrna kvenna í hálfa öld – þakkir til Eggerts Magnússonar
Ingibjörg Hinriksdóttir skrifar

80.000 manna klóakrennsli í Dýrafjörð í boði Arctic Fish
Jón Kaldal skrifar

Malað dag eftir dag eftir dag
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar

Að velja friðinn fram yfir réttlætið
Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar