Níu fallhlífarstökkvarar létust í flugslysi Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 22. júní 2019 18:46 Vélin sem brotlenti var notuð í fallhlífastökk. Myndin tengist fréttinni ekki beint. getty/Murat Oner Tas
Minnst ellefu manns létust þegar smá flugvél brotlenti á Hawaii. Um borð í vélinni voru fallhlífastökkvarar sem hygðust stökkva úr vélinni. Frá þessu er greint á vef breska ríkisútvarpsins BBC og á vef fréttastofu Sky. Vélin brotlenti skammt frá Dillingham flugvellinum nálægt Mokuleia í Honolulu sýslu. Enginn lifði brotlendinguna af sagði samgönguráðuneyti Hawaii á Twitter. Talið er líklegt að fjölskyldumeðlimir fallhlífastökkvaranna hafi séð vélina brotlenda. Af myndum má sjá reyk sem lagði frá vélinni eftir lendinguna úr margra kílómetra fjarlægð. Yfirvöld á Hawaii sögðu að vélin hafi brotlent stuttu eftir flugtak en nokkur vitni segja að flugvélin hafi brotlent stuttu frá flugvellinum rétt fyrir lendingu en það hefur ekki verið staðfest. „Akkúrat núna, teljum við að níu sálir hafi verið um borð,“ sagði slökkviliðsstjóri svæðisins, Manuel Neves í samtali við Hawaii News Now. „Það lifði enginn af.“ Fjölskyldumeðlimir fallhlífastökkvaranna voru að fylgjast með á jörðu niðri þegar vélin brotlenti og talið er líklegt að þeir hafi séð vélina á niðurleið. „Þetta er mjög erfitt. Á mínum fjörutíu árum sem slökkviliðsmaður hér á Hawaii, er þetta sorglegasta flugslysið sem hefur orðið hér,“ bætti Neves við. Slökkvilið Honululu sagði að tilkynningar um brotlenta vél hafi borist þeim kl. 18 á staðartíma á föstudag. Af þeim níu sem dóu voru þrír viðskiptavinir og sex starfsmenn fyrirtækisins sem átti vélina.
Bandaríkin Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira