Arnór: Spiluðum frábæran handbolta á köflum Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 11. janúar 2019 18:53 Arnór Þór Gunnarsson vísir/getty
Íslenska karlalandsliðið í handbolta tapaði með fjórum mörkum fyrir því króatíska í fyrsta leik á HM í dag. Arnór Þór Gunnarsson sagði liðið heilt yfir hafa spilað nokkuð vel þó úrslitin séu svekkjandi. „Maður er bara mjög fúll. Mér fannst við vera að spila á köflum frábæran handbolta, frábæra vörn og frábæra sókn, en auðvitað duttum við eitthvað niður, það er eðlilegt á móti svona góðu liði eins og Króatíu,“ sagði Arnór Þór við Tómas Þór Þórðarson að leik loknum úti í München. „En við gerum of mikið a tæknimistökum síðustu fimm mínúturnar og það drepur okkur.“ Íslenska liðið er ungt og frekar óreynt, skrifast þessi lokakafli á þá staðreynd? „Við ætlum ekki að vera með neinar afsakanir og allt það, þetta getur gerst og við þurfum að læra af þessu allir, ekki bara ungu strákarnir.“ „Við þurfum bara að fara vel yfir leikinn á morgun, það er frídagur á morgun, og bæta okkur. Ég held við getum það.“ Á tímabili í seinni hálfleik átti Ísland frábæran 8-2 kafla og komst aftur yfir eftir að hafa lent undir. „Þá vorum við að spila fantavörn. Gústi [Ágúst Elí Björgvinsson] kom inn og varði nokkra bolta sem hjálpar okkur gríðarlega. Við þurfum að nýta okkur það, hefðum mátt gera meira af því í leiknum,“ sagði Arnór Þór Gunnarsson.Klippa: Arnór: Spiluðum frábæran handbolta á köflum
HM 2019 í Þýskalandi og Danmörku Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Fleiri fréttir Selfoss - Fram | Barist við botninn Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Sjá meira