Brooklyn hafði betur gegn besta liði deildarinnar Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 7. apríl 2019 09:06 Brooklyn vann dýrmætan sigur vísir/getty
Tveir leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Besta lið austurdeildarinnar, Milwaukee Bucks, tapaði fyrir Brooklyn Nets og Philadelphia 76ers hafði betur gegn Chicago Bulls. Í gærnótt tryggði Bucks sér efsta sætið í austurdeildinni og í nótt voru heimamenn án stórstjörnunnar Giannis Antetokounmpo sem er að glíma við meiðsli á kálfa. Brooklyn Nets er hins vegar í baráttu um að komast í úrslitakeppnina og gæti þessi sigur reynst þeim mikilvægur. Staðan var jöfn þegar um ein og hálf mínúta var eftir af leiknum og Joe Harris setti niður þriggja stiga skot. D'Angelo Russell tryggði svo 133-128 sigurinn með sniðskoti. Gestirnir settu alls 19 þriggja stiga skot í leiknum og fóru átta leikmenn í tveggja stafa tölu í stigaskori. Nets er nú í sjötta sæti austurdeildarinnar, fyrir ofan Orlando Magic og Detroit Pistons sem eru þó ekki langt undan. Brooklyn á hins vegar betri innbyrðisstöðu á bæði lið. Í Chicago fóru gestirnir í Philadelphia 76ers með öruggan sigur á heimamönnum 116-96. Joel Embiid var með 20 stig og 10 fráköst og JJ Redick setti 23 stig. Þetta var fimmtugasti sigur Philadelphia á tímabilinu. Philadelphia er í þriðja sæti austurdeildarinnar og er öruggt í úrslitakeppnina en Bulls á ekki möguleika á henni.
NBA Mest lesið Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti Landsliðsmiðverðirnir skiptu báðir um lið í dag Fótbolti Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti Kæra forseta FIFA til Alþjóðaólympíunefndarinnar Fótbolti Spánverjar í úrslitaleikinn eftir sannfærandi sigur á Frökkum Fótbolti Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Körfubolti „Mikilvægasti leikurinn minn og ég er ekki hræddur“ Fótbolti Uppgjörið: Györ ETO - Víkingur 2-2 | Tvö mörk Daníels komu Víkingi áfram í næstu umferð Fótbolti „Ekkert af þessu gekk og þá líður manni ömurlega“ Íslenski boltinn „Þetta er svo hörmulegur dómur, án gríns“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Sjá meira