Middlesbrough hafði betur í fallslagnum

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Leikmenn Boro gátu fagnað í kvöld
Leikmenn Boro gátu fagnað í kvöld vísir/getty

Middlesbrough hafði betur gegn Stoke í fallslag í ensku Championshipdeildinni í kvöld.

Fyrri hálfleikur var nokkuð bragðdaufur og var staðan markalaus að honum loknum.

Gestirnir í Stoke komust yfir snemma í síðari hálfleik með marki frá Sam Clucas og var það ekki gegn gangi leiksins því Stoke hafði verið hættulegra liðið í fyrri hálfleik.

Ashley Ferguson jafnaði hins vegar metin aðeins fjórum mínútum eftir mark Clucas. Lewis Wing skoraði svo sigurmarkið fyrir Middlesbrough á 72. mínútu.

Leiknum lauk því með 2-1 sigri Middlesbrough.

Middlesbrough er nú komið í 18. sæti deildarinnar með 24 stig. Stoke er í fallsæti með 18 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira