Jól

Litla föndurhornið: Endurunninn jólakrans

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar

Kristbjörg Ólafsdóttir sér um Litla föndurhornið, vikulegan lið hér á Vísi. Í desember ætlar hún að deila einu jólaföndri á dag með lesendum Vísis alveg fram að jólum. Við gefum Kristbjörgu orðið.

Ef þið vissuð það ekki nú þegar þá elska ég að endurnýta hlutina, og þess vegna get ég stolt sagt að allt sem ég notaði í þennan krans,og kransinn sjálfur, er endurnýtt, það er keypt í Hjálpræðishernum. Kransinn var kannski ekki sá fallegasti þegar ég keypti hann, en ég veit að maður á aldrei að dæma bókina eftir kápunni. 

Ég byrjaði á því að fjarlægja borðann. Svo tók ég til það jólaskraut sem ég hélt að gæti passað saman og takk límbyssunni minni í samband. Ég bjó til slaufu og límdi niður gervigreni.

Svo eftir að ég var búin að líma slaufuna í miðjuna þá stakk ég þessum gylltu laufblöðum inn á milli, ásamt nokkrum rauðum litlum berjum og kransinn var endurfæddur. Þetta tók mig kannski 15 mínútur og miðað við útkomuna, þá voru þessar 15 mín. alveg þess virði. 


Tengdar fréttir








×