Markalaust í fjörugum leik í Blackburn

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Það var mikið fjör í Blackburn í kvöld
Það var mikið fjör í Blackburn í kvöld vísir/getty

Það gengur áfram illa hjá Wigan að vinna á útivelli í ensku Championshipdeildinni en liðið gerði markalaust jafntefli við Blackburn í kvöld.

Þrátt fyrir að leikurinn hafi endað markalaus var hann alls ekki atvikalaus.

Gestirnir í Wigan voru miklu sterkari aðilinn í fyrri hálfleik en gekk illa að koma boltanum í netið. Blackburn kom sér smám saman inn í leikinn en varð fyrir áflali þegar þeirra aðal markaskorari, Bradley Dack, var borinn af velli vegna meiðsla.

Danny Graham komst nálægt því að skora fyrir Blackburn þegar hann setti boltann í þverslána áður en markmaður Blackburn, Christian Walton, þurfti svo að taka á honum stóra sínum í tvígang til þess að halda Blackburn inn í leiknum.

Það var í raun ótrúlegt að hvorugu liði skildi takast að skora, en sú varð þó raunin og lauk leiknum með 0-0 jafntefli.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira