Haller sökkti Dýrlingunum

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Sigurmarkinu fagnað
Sigurmarkinu fagnað vísir/getty

Það var boðið upp á alvöru fallbaráttuslag í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni þar sem Southampton fékk West Ham í heimsókn á St.Mary´s leikvanginn.

Sebastian Haller fékk tækifærið í byrjunarliði Manuel Pellegrini og hann nýtti það þegar hann kom West Ham í 0-1 á 37.mínútu eftir undirbúning Michail Antonio og Pablo Fornals. 

Reyndist það að lokum eina mark leiksins. 

Southampton því enn í fallsæti með 15 stig en West Ham hefur fjórum stigum meira í 15.sæti deildarinnar en þetta var aðeins annar sigur West Ham í síðustu 11 deildarleikjum sínum.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira