Matur

Hinn fullkomni áramótaeftirréttur

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Vísir/Sylvía Haukdal

Bakað með Sylvíu Haukdal eru nýir þættir á Stöð 2 Maraþon. Í þessum þætti deilir hún uppskrift að áramótarétt.

Sylvía Haukdal er ótrúlega klár þegar kemur að kökubakstri og kökuskreytingum. Hún heldur úti fallegu kökubloggi ásamt því að starfa hjá Sætum syndum. Þættirnir hennar verða sýndir á Stöð 2 maraþon í desember. Í spilaranum hér að neðan má sjá þáttinn í heild sinni en uppskrift og aðferð er neðar í fréttinni. Við gefum Sylvíu Haukdal orðið. 

Klippa: Áramótaeftirréttur - Bakað með Sylvíu Haukdal

Uppskrift - Áramótaeftirréttur

Marengsskálar: 

300 g sykur 

150 g eggjahvítur 

kókos 

Aðferð: 

  1. Við byrjum á að hita ofninn í 180°, setjum síðan sykurinn á ofnplötu og inn í ofn í 8-10 mínútur eða þar til hann fer að bráðna á endunum.
  2. Þegar um mínúta er eftir af sykrinum inn í ofni byrjum við að þeyta eggjahvíturnar. 
  3. Síðan hellum við sykrinum smá saman við eggjahvíturnar, höldum svo áfram að þeyta þar til blandan hefur kólnað. 
  4. Næst setjum við blönduna í sprautupoka og spautum skálar á sílikonmottu eða bökunarpappír. Ég notaði stút nr. 2D til að sprauta skálarnar. 
  5. Að lokum fer smá kökuskraut og kókos yfir og skálarnar eru bakaðar við 95° í 1 klst. og 15 mín. 

Karamellusúkkulaðimús:

100 g Karamellu Lindor kúlur 

50 ml rjómi 

130 ml Millac jurtarjómi 

130 ml rjómi

Aðferð:

  1. Við brytjum karamellu kúlurnar niður og á meðan hitum við 50ml af rjóma upp að suðu.
  2. Þegar rjóminn er kominn upp að suðu hellum við honum yfir kúlurnar og hrærum vel þar til allt er komið saman, leyfum að kólna á meðan við þeytum rjómann.
  3. Næst stífþeytum við saman jurtarjómann og rjómann. 
  4. Svo hrærum við ca. helming af þeytta rjómanum saman við súkkulaðiblönduna og svo hinn helminginn strax á eftir.
  5. Síðan fer karamellusúkkulaðimúsin í sprautupoka og inn í kæli í smá stund áður en við sprautum á skálarnar.

Samsetning: 

10 stk jarðaber skorin í teningar 

Ber til skreytingar

Flórsykur til skreytingar  


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×