Viðskipti innlent

Samherji segir uppbyggingu hamlað og Norlandair horfir til Grænlands með framtíðaraðstöðu í huga

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Samgönguáætlun gerir hvorki ráð fyrir að því að ljúka við flughlað Akureyrarflugvallar né því að stækka flugstöðina.  Fyrirtækin Norlandair og Samherji segja það standi atvinnuuppbyggingu fyrir þrifum.
Samgönguáætlun gerir hvorki ráð fyrir að því að ljúka við flughlað Akureyrarflugvallar né því að stækka flugstöðina. Fyrirtækin Norlandair og Samherji segja það standi atvinnuuppbyggingu fyrir þrifum. Fréttablaðið/Pjetur
Útgerðarfélagið Samherji gagnrýnir að í drögum að samgönguáætlun sé hvorki gert ráð fyrir að því að ljúka við flughlað Akureyrarflugvallar né því að stækka flugstöðina við völlinn.

Í umsögn Samherja til Alþingis segir að flughlaðið sé forsenda þess að byggja upp atvinnulóðir á Akureyrarflugvelli. Fyrirtæki á svæðinu hafi viljað byggja allt frá því árið 2013. „Þetta hamlar frekari uppbyggingu fyrirtækja sem starfa í tengslum við völlinn, þar með talið Norlandair ehf, sem Samherji hf. er hluthafi í. Meðan flughlaðið er ekki tilbúið getur Norlandair ekki byggt upp framtíðaraðstöðu eins og nauðsynleg er til uppbyggingar á fyrirtækinu.“

Norlandair sendir einnig inn umsögn og tekur þar í sama streng. Minnt er á að félagið hafi sinnt leiguflugi og áætlunarflugi frá Akureyri til Nerlerit Inaat á austurströnd Grænlands, ásamt því að sinna áætlunarflugi til Vopnafjarðar, Þórshafnar og Grímseyjar. Sótt hafi verið um nýja lóð á væntanlegri uppfyllingu við flugvöllinn árið 2012 en Isavia hafi synjað þeirri beiðni.

„Á þessum tíma höfðu bæði ráðherrar og aðrir þingmenn fullyrt í okkar eyru að það yrði gengið frá þessari uppfyllingu þannig að hægt væri að koma upp aðstöðu þar innan tiltölulega skamms tíma. Nú, árið 2019, heilum sjö árum frá því að farið var í umsóknarferli fyrir byggingarlóð, er staðan sú að það vantar töluvert af efni í uppfyllinguna,“ segir í umsögn Norlandair. Nú geti önnur fimm ár bæst við biðtímann sem væri þá orðinn tólf ár í heild.

„Í krefjandi rekstrarumhverfi sem flugrekstur er, þá gefur augaleið að tólf ára biðtími er óraunhæfur. Því hefur verið horft til annarra svæða, til dæmis Grænlands, til framtíðaruppbyggingar á félaginu og ef samgönguáætlun verður samþykkt eins og hún liggur fyrir þá er ljóst að það þarf að setja aukinn kraft í þá vinnu,“ boðar Norlandair í umsögn sinni.


Tengdar fréttir

Jón segir uppbyggingu varaflugvalla ekki þola bið

Varaformaður umhverfis- og samgöngunefndar og fyrrverandi samgönguráðherra segir uppbyggingu varaflugvalla á Akureyri og Egilsstöðum ekki þola bið. Breyta þurfi fyrirliggjandi samgönguáætlun og þar með fjárlögum næsta árs til að framkvæmdir geti hafist.

Icelandair fagnar tillögum um forgang á uppbyggingu Egilsstaðaflugvallar

Icelandair fagnar þeirri tillögu sem kemur fram í drögum að grænbók um stefnu stjórnvalda í málefnum flugrekstrar og flugtengdrar starfsemi á Íslandi, að uppbygging Egilsstaðaflugvallar verði sett í forgang hvað varðar uppbyggingu á varaflugvöllum fyrir Keflavíkurflugvöllum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×