Bílar

Askja tekur formlega við Honda umboðinu

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Honda e rafbíllinn verður kynntur til leiks hjá Öskju á næsta ári.
Honda e rafbíllinn verður kynntur til leiks hjá Öskju á næsta ári. Vísir/Honda
Bílaumboðið Askja tekur formlega við Honda umboðinu á Íslandi þann 8. nóvember. Askja tekur við umboðinu af Bernhard sem er í eigu fjölskyldu stofnandans, Gunnars Bernhards. Fyrir er Askja með umboð fyrir Mercedes-Benz og Kia og nú bætist Honda við sem þriðja vörumerkið hjá fyrirtækinu.

Honda er sjöundi stærsti bílaframleiðandi heims og framleiðir yfir 5 milljón bíla á ári. Fyrirtækið er annar stærsti bílaframleiðandi Japans. Honda er auk þess stærsti framleiðandi mótorhjóla í heiminum. Honda framleiðir vinsæla bíla og má þar nefna jepplinginn CR-V, sem hefur verið einn vinsælasti bíll landsins um árabil, auk fólksbílanna Jazz og Civic.

Honda hefur markað sér afgerandi stefnu í rafvæðingu og á næstu 36 mánuðum mun Honda kynna sex nýja umhverfisvæna bíla á markað í Evrópu. Þar af verða tveir rafbílar og fjórir Hybrid bílar. Nýr Honda e rafbíll og Honda Jazz í Hybrid útfærslu eru fyrstu bílarnir af þessum sex nýju, umhverfisvænu bílum úr smiðju Honda og koma þeir báðir á næsta ári.

Askja er til húsa að Krókhálsi 11.Vísir/Askja
Askja er með höfuðstöðvar á Krókhálsi 11 þar sem þjónustan fyrir Honda bíla verður en söludeild Honda verður með aðsetur á Fosshálsi 1. Bílaumboðið Askja var stofnað árið 2005 og þar starfa fyrir 125 starfsmenn og nú bætast 15 starfsmenn frá Bernhard í hópinn

„Við hjá Öskju erum full tilhlökkunar á þessum spennandi tímamótum og bjóðum viðskiptavini Honda velkomna til okkar. Honda er sterkt og gott merki sem hefur verið vinsælt og vel sinnt á Íslandi. Sterk sýn Honda á rafbílavæðingu sannfærði okkur um að þetta merki hentaði Öskju vel. Við munum fá fyrstu Honda e rafbílanna á næsta ári og hefst forsala þeirra í janúar nk. Það eru því mjög áhugaverðir tímar framundan og ég er sannfærður um Honda merkið á eftir að styrkja sig enn frekar í sessi hér á landi á komandi misserum,“ segir Jón Trausti Ólafsson, framkvæmdastjóri Öskju.

„Í Evrópu leggur Honda áherslu á hönnun, útlit og gæði bíla, en ekki magn,“ segir Jón Trausti og bætir við að Askja muni bjóða upp á 5 ára ábyrgð á Honda bílum og allt að 5 ára þjónustusamninga með nýjum bílum þar sem eigandi greiðir mánaðarlegt gjald og þá er öll þjónusta innifalin.

„Fyrir hönd Bernhard fjölskyldunnar viljum við stjórnendur Bernhard ehf., Geir, Gylfi og Gunnar Gunnarssynir, þakka hinum fjölmörgu tryggu viðskiptavinum Honda hér á Íslandi samfylgdina undanfarin 57 ár og við óskum Öskju, nýjum umboðsaðila Honda á Íslandi velfarnaðar í framtíðinni“, segir Gylfi Gunnarsson, framkvæmdastjóri Bernhard.


Tengdar fréttir

Askja kaupir Hondu-umboðið á Íslandi

Bílaumboðið Askja ehf. og Bernhard ehf. hafa undirritað kaupsamning um kaup Öskju á þeim hluta reksturs Bernhard ehf. sem fer með Honda umboðið á Íslandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×