Cristiano Ronaldo snéri aftur með sigurmark í uppbótartíma

Anton Ingi Leifsson skrifar
Ronaldo fagnar.
Ronaldo fagnar. vísir/getty
Cristiano Ronaldo fékk frí frá leik Juventus um helgina en hann snéri aftur í kvöld með sigurmark í uppbótartíma er liðið vann 2-1 sigur á Genoa.

Varnartröllið Leonardo Bonucci kom Juve yfir á 36. mínútu en einungis fjórum mínútum síðar jafnaði Christian Kouame metin.

Francesco Cassata, leikmaður Genoa, fékk að líta sitt annað gula spjald og þar með rautt á 51. mínútu. Gestirnir því einum færri.

Liðin urðu svo jöfn á 87. mínútu er Adrien Rabiot, sem hefur ekki fengið að spreyta sig mikið í liði Juve, fékk að líta sitt annað gula spjald og þar með rautt.

Einhverjir héldu að Cristiano Ronaldo væri að skora sigurmarkið í uppbótartíma en það var svo dæmt af vegna rangstöðu.

Öll dramatík var ekki úti því síðar í uppbótartímanum fengu Juve menn víti eftir brot á Ronaldo. Hann steig sjálfur á punktinn og skoraði.







Juventus er því ásamt Inter á toppi deildarinnar með 25 stig.

Chris Smalling var á skotskónum fyrir Roma sem vann 4-0 sigur á Udinese en Atalanta er í 3. sætinu eftir 2-2 jafntefli gegn Napoli á útivelli.







Öll úrslit dagsins:

Napoli - Atalanta 2-2

Cagliari - Bologna 3-2

Juve - Genoa 2-1

Lazio - Torino 4-0

Sampdoria - Lecce 0-1

Sassuolo - Fiorentina 1-2

Udinese - Roma 0-4

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira