Viðskipti erlent

Fall Thomas Cook reiðarslag fyrir ferðamannaiðnað Spánar

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Thomas Cook ferðaþjónustan er gjaldþrota. Áhrif falls félagsins eru farin að láta á sér kræla, meðal annars á Spáni.
Thomas Cook ferðaþjónustan er gjaldþrota. Áhrif falls félagsins eru farin að láta á sér kræla, meðal annars á Spáni. getty/Alexander Hassenstein
Fall breska ferðaþjónusturisans Thomas Cook hefur haft gríðarleg áhrif um heim allan. Þegar fyrirtækið fór í gjaldþrot í síðasta mánuði urðu um 600 þúsund manns strandaglópar víðs vegar um heiminn og hundruðum þúsunda ferða var aflýst. Áhrifa gjaldþrotsins gætir einna mest í ferðamannaiðnaði Spánar.

Samkvæmt breska ríkisútvarpinu er fjöldi starfa í ferðamannageiranum í hættu. Er þar einna helst um að ræða dótturfyrirtæki Thomas Cook og önnur fyrirtæki, líkt og hótel, sem áttu í samningum við ferðaþjónustufyrirtækið.

Samtök hótelrekenda og ferðaþjónustufyrirtækja á Spáni segja að 1,3 milljónir ferðamanna muni ekki komast leiðar sinnar til Spánar vegna falls Thomas Cook. Segja samtökin þetta gera það að verkum að loka þurfi 500 hótelum og gistihúsum hið minnsta, með þeim afleiðingum að hundruð milljóna evra, sem hefðu komið inn í landið, fara í vaskinn.

Spænsk yfirvöld hafa reynt að bregðast við ástandinu með því að veita 300 milljónum evra, rúmlega 41 milljarði íslenskra króna, til ferðamannaiðnaðarins. Engu að síður er útlitið svart fyrir starfsfólk ferðamannaiðnaðarins.

Talið er að Kanaríeyjar komi til með að koma hvað verst út úr falli Thomas Cook. Fyrsta hótelið til þess að leggja upp laupana, Fuertaventura Princess, er staðsett þar. Hótelið var með samning við Thomas Cook en það hafði bókað 95% herbergja sinna til ársins 2023 í samstarfi við Thomas Cook. Öllum 160 starfsmönnum hótelsins verður því sagt upp. Áætlað er að sömu örlög bíði á fjórða þúsund starfsmanna í hótelgeiranum á Spáni.

„Við erum með hótel hérna, opin og tilbúin, en viðskiptavinirnir komast ekki hingað,“ hefur BBC eftir Ramón Estalella, formanni samtaka hótelrekenda og ferðaþjónustufyrirtækja. Hann telur að skjótra viðbragða sé þörf.

„Það þarf að gera eitthvað til þess að fá flugfélögin til þess að taka þátt í kostnaðinum með því að lækka verð hjá sér. Við þurfum að taka meiri áhættu. Það er ósanngjarnt að hótelin þurfi að borga ógreiddan virðisaukaskatt Thomas Cook og dótturfyrirtækja þess, sem þau vita að þau fá eldrei endurgreidd.“


Tengdar fréttir

Thomas Cook fallið

Eftir árangurslausar viðræður í nótt ákváðu lánadrottnar og hluthafar að leggja niður starfsemi ferðaþjónustufyrirtækisins Thomas Cook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×