Makamál

Framkoma og útlit það fyrsta sem heillar

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Samkvæmt könnun Makamála segja lesendur Vísis það fyrsta sem heilli við manneskju vera framkoma og útlit.
Samkvæmt könnun Makamála segja lesendur Vísis það fyrsta sem heilli við manneskju vera framkoma og útlit. Getty
Makamál spurðu lesendur Vísis í síðustu viku hvað væri það fyrsta sem heillaði þá við manneskjur. 

Rúmlega 2000 manns tóku þátt í könnuninni og má segja að niðurstöðurnar sýni að framkoma og útlit sé það fyrsta sem að heilli.

Eðlilega er það svo misjafnt hvað það er við framkomu fólks og útlit sem höfðar til okkar en oft hefur verið sagt að fyrstu kynni hafi mjög mikið vægi í því hvort að við heillumst að fólki eða ekki.

Athygli vakti að aðeins 2% lesenda svöruðu að röddin væri það fyrsta sem heillar en margar rannsóknir hafa aftur á móti sýnt fram á að röddin sé næstum eins mikilvæg og útlit í fyrstu kynnum. 



Niðurstöður*:

Útlit - 23%


Klæðnaður - 1%

Framkoma - 33%

Rödd - 2%

Ilmur - 1%

Sambland af ofangreindum atriðum - 40%



* Tekið skal fram að niðurstöður byggjast eingöngu á svörum lesenda Vísis og því ekki hægt að alhæfa um niðurstöður. Kannanir Makamála eru ætlaðar til skemmtunar og til að vekja umræðu og athygli á ýmsum málefnum.



Makamál mættu í Brennsluna á FM957 í morgun og ræddu um niðurstöðurnar ásamt því að kynna til leiks nýja spurningu vikunnar: Hefur þú efast um kynhneigð þína?

Klippa: Brennslan - Umdeilt viðtal á Makamálum: 'Stundum langar mig bara að leika við lim“

Tengdar fréttir

Góða nótt kossinn lifir enn

Samkvæmt niðurstöðum úr könnun Makamála segjast langflestir lesenda Vísis sem eru í sambandi næstum alltaf kyssa makann sinn góða nótt.

Bréfið: „Stundum langar mig bara að leika við lim“

„Ég er 50 ára karlmaður með ágætis reynslu í kynlífi. Á dögunum var ég spurður af vinkonu minni hvort að ég hefði verið með karlmanni, ég andaði djúpt og hugsaði hvort ég ætti að segja satt eður ei.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×