Makamál

Spurning vikunnar: Hefur þú efast um kynhneigð þína?

Er það meira tabú að karlmenn hafi kynferðislegar langanir til annarra karlmanna en konur til kvenna?
Er það meira tabú að karlmenn hafi kynferðislegar langanir til annarra karlmanna en konur til kvenna? Getty
Makamál tók VIÐTAL í vikunni við karlmann sem sagði frá upplifun af kynhneigð sinni og kynlífsreynslu með karlmönnum í gegnum árin.

Í viðtalinu talar hann um að hafa verið á unglingsárum sínum „hræddur við það að vera hommi“ eftir að hafa fundið fyrir kynferðislegum löngunum til karlmanna. En þrátt fyrir þetta hafi hann aldrei þorað eða viljað skilgreina sig sem tvíkynhneigðan eða samkynhneigðan. Hann segir jafnframt að viðhorf samfélagsins til karla og kvenna í þessum málum sé gjörólíkt. 

Það sé tabú að karlar leiki saman meðan að það sé töff ef konur geri það. 

Út frá þessum pælingum kemur spurning vikunnar.

Hefur þú efast um kynhneigð þína?



Settar voru upp tvær kannanir og fólk beðið að svara þeirri könnun sem á við þeirra kyn.



KONUR SVARA HÉR: 


KARLAR SVARA HÉR: 


Tengdar fréttir

Handjárna-tímabilið er hafið

Þegar talað er um The Cuffing season eða Handjárna-tímabilið er auðvelt að álykta að það sé verið að tala um eitthvað kynferðislegt, ekki satt? En hver er hin raunverulega skilgreining?

Bréfið: „Stundum langar mig bara að leika við lim“

„Ég er 50 ára karlmaður með ágætis reynslu í kynlífi. Á dögunum var ég spurður af vinkonu minni hvort að ég hefði verið með karlmanni, ég andaði djúpt og hugsaði hvort ég ætti að segja satt eður ei.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×