Jafntefli í Cardiff

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Það var jafnræði með liðunum í Cardiff í kvöld
Það var jafnræði með liðunum í Cardiff í kvöld vísir/getty
Cardiff og Sheffield Wednesday gerðu jafntefli í eina leik kvöldsins í ensku B-deildinni í fótbolta.

Julian Börner kom gestunum í Wednesday yfir á 19. mínútu leiksins af stuttu færi. Heimamenn jöfnuðu metin með marki Lee Tomlin beint úr aukaspyrnu á síðustu mínútunum.

Fleiri urðu mörkin ekki og lokatölur 1-1 í Cardiff.

Cardiff er í 11. sæti deildarinnar en stigið kom Sheffield upp í það sjötta.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira