Viðskipti innlent

Rausnarlegar greiðslur fyrir setu í stjórn Lindarhvols ehf

Jakob Bjarnar skrifar
Skrifstofustjóri Bjarna gegndi formennsku í stjórn.
Skrifstofustjóri Bjarna gegndi formennsku í stjórn. visir/vilhelm

Þórhallur Arason skrifstofustjóri Fjármálaráðuneytisins fékk tæpar 327 þúsund krónur greiddar fyrir hvern fund meðan hann gegndi formennsku í stjórn Lindarhvols ehf.



Ríkisendurskoðandi er nú með rekstur Lindarhvols ehf. til rannsóknar. Meðal þess sem sjá má í ársreikningum fyrirtækisins.



Lindarhvoll ehf. var stofnað 15. apríl 2016 en starfsemi félagsins lauk 7. febrúar 2018. Þetta kom fram í tilkynningu á vefsíðu þess.

Lögmannsstofan Íslög fékk sitt

Þannig starfaði félagið í 663 daga, þar af 457 vinnudaga sem gerir 21 mánuð og þrjár vikur. Starfsemi Lindarhvols kostaði ríkissjóð 323.665 krónur á dag, eftir því sem Vísir kemst næst.

Það kostaði sitt að reka Lindarhvol ehf.

Til þess var stofnað af fjármálaráðuneytinu, í tíð Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra og formanns Sjálfstæðisflokksins. Því bar að selja eignir sem ríkið fékk í fangið eftir nauðasamninga við föllnu bankana seint á árinu 2015. Verulegrar óánægju gætti með það hversu ógegnsætt ferlið virtist vera og þannig greindi Vísir til að mynda frá því í nóvember árið 2016 að engin svör bærust við fyrirspurnum þaðan.



En, samkvæmt ársreikningum greiddi Lindarhvoll ehf lögmannastofunni Íslögum rúmar 102 milljónir með virðisaukaskatti.

Þórhallur Arason gegndi formennsku samhliða störfum sínum sem skrifstofustjóri í fjármálaráðuneytinu.

Ef aðeins er tekið tillit til virkra daga að frádregnum virðisaukaskatti greiddi Lindarhvoll Íslögum liðlega 178 þúsund krónur á dag.

Ágætlega haldnir stjórnarmenn

Alls voru 16 stjórnarfundir haldnir í Lindarhvoli árið 2016. Fundir voru haldnir á miðvikudögum eftir hádegi. Stjórnunarlaun fyrir árið 2016 voru rúmar 12 milljónir króna ef frá eru dregin launatengd gjöld. Þannig fékk formaður Lindarhvols því liðlega 327 þúsund krónur fyrir hvern fund og meðstjórnendur liðlega 216 þúsund krónur.



Í stjórn Lindarhvols á þessum tíma var Þórhallur Arason formaður stjórnar en auk hans sátu í stjórninni þau Ása Ólafsdóttir og Haukur C. Benediktsson. Samhliða stjórnunarstörfum störfuðu stjórnarmenn í fullu starfi hjá hinu opinbera; Þórhallur sem skrifstofustjóri fjármálaráðuneytisins en hann er nú farinn á eftirlaun, Haukur sem forstöðumaður Eignasafns Seðlabanka Íslands og Ása var þá dósent við Háskóla Íslands.


Tengdar fréttir

Ógagnsæi og þögn í söluferli eigna ríkisins

Hörð gagnrýni er á sölu hlutar ríkisins í Klakka sem á lánafyrirtækið Lýsingu. Tekið á móti tilboðum í tölvupósti og efasemdir eru um jafnræði bjóðenda.

Bjarni skipar stjórn Lindarhvols

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra hefur stofnað félagið Lindarhvol ehf. til að halda utan um þær eignir sem ríkið eignast vegna stöðugleikaframlaga.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×